
Stefna Rauða kross Íslands til 2020
NEYÐARAÐSTOÐ VEGNA ÁFALLA OG HAMFARA
Rauði krossinn var stofnaður til að bregðast við neyð og er það stærsta verkefni hreyfingarinnar. Rauði krossinn hefur mikla reynslu af því að bregðast skjótt við skyndilegri neyð með aðstoð við þolendur hamfara og áfalla bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Brugðist er við með fárframlögum en þó fyrst og fremst með mannafla.
Neyðaraðstoð innanlands
Rauði krossinn leggur ríka áherslu á viðbrögð og viðbúnað við tímabundinni neyð. Rauði krossinn tryggir öflugar neyðarvarnir og neyðaraðstoð á Íslandi og er mikilvægur hlekkur í almannavörnum landsins. Jafnframt tekur félagið virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd sálræns stuðnings hérlendis. Viðbragðsgetan byggir á neti deilda og vel þjálfuðum sjálfboðaliðum um land allt.
Að efla getu til að takast á við áföll
Mikilvægt verkefni Rauða krossins er að efla einstaklinga og samfélög til að takast á við skyndileg áföll. Skipulag og þjálfun sjálfboðaliða er þar mikilvægur þáttur.
Alþjóðleg neyðaraðstoð.
Neyðaraðstoð er eitt meginhlutverka Rauða krossins. Grasrótaruppbygging hreyfingarinnar í hverju landi gerir sjálfboðaliðum Rauða krossins og Rauða hálfmánans kleift að bregðast hratt við neyð. Loftslagsbreytingar munu á næstu árum stuðla að fleiri og skaðlegri náttúruhamförum sem bitna ekki síst á fátækum löndum. Samkvæmt Genfarsamningunum gegnir Rauða kross hreyfingin sérstöku hlutverki sem óháður aðili á átaka- og spennusvæðum. Á erlendum vettvangi eru sendifulltrúar Rauða kross Íslands mikils metnir.
MANNÚÐ OG FÉLAGSLEGT ÖRYGGI
Rauða krossinum er annt um þá sem eru félagslega berskjaldaðir, starfar með þeim og fyrir þá. Sú sérstaða félagsins þarf að vera öllum ljós. Rauði krossinn vinnur að því að efla samstarf við aðrar hjálparstofnanir og stjórnvöld með það að markmiði að þeir sem höllum fæti standa fái sem bestan stuðning.
Félagslegt öryggi
Rauði krossinn vinnur markvisst að því að auka félagslegt öryggi berskjaldaðra út frá grundvallarhugsjónum hreyfingarinnar. Félagið fylgist reglulega með hvaða samfélagshópar eru berskjaldaðir.
Málsvarastarf
Mikilvægur þáttur í starfi Rauða krossins er að tala máli mannúðar. Genfarsamningarnir eru þar grundvallaratriði sem Rauða krossinum ber að fylgja eftir gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Rauði krossinn vinnur einnig að því að draga úr fordómum með fræðslu og virkri umræðu.
Langtímaverkefni í alþjóðlegu hjálparstarfi
Meginverkefni Rauða krossins á alþjóðavettvangi miða að því að styðja til sjálfshjálpar fólk sem býr við örbirgð. Sérstök áhersla er lögð á að vinna gegn sjúkdómum, s.s. alnæmi, og milda aflleiðingar stríðsátaka, einkum gagnvart börnum og ungmennum. Rauði krossinn leggur einnig mikla áherslu á að draga úr óæskilegum afleiðingum loftslagsbreytinga.
ÖFLUGT OG VEL STARFANDI RAUÐAKROSSFÉLAG
Rauði kross Íslands er eitt félag og starfar sem ein heild. Styrkur félagsins byggir á að eining ríki um markmið og verkefni þess. Jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllu starfi Rauða krossins. Lögð er áhersla á skilvirkni og vinnulag sem tekur mið af tekjum félagsins. Endurskoða þarf starfsemina reglulega þannig að styrkleikar Rauða krossins nýtist sem best
Mannauður
Árangur Rauða krossins byggir á hæfum og vel þjálfuðum sjálfboðaliðum og starfsfólki sem starfar eftir leiðarljósi og siðareglum félagsins. Sjálfboðaliðar á öllum aldri og úr mismunandi samfélagshópum eru lykillinn að árangri Rauða krossins.
Skipulag
Rauði krossinn er öflugt félag sem byggir á störfum sjálfboðaliða um allt land með stuðningi starfsfólks. Skipulag Rauða krossins miðast við að starf félagsins nýtist sem best þeim sem eru berskjaldaðir. Hlutverk lykilaðila er skilgreint með ábyrgðarlýsingum og skipuriti.
Alþjóðlegt samstarf
Rauði kross Íslands tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi á vettvangi Alþjóðahreyfi¬ngarinnar. Rauði krossinn leggur áherslu á mikilvægi Alþjóðasambands Rauða krossins sem samhæfingaraðila en sinnir einnig alþjóðlegu hjálparstarfi beint.
Fjáröflun og meðferð fjármagns
Rauði kross Íslands leggur aukna áherslu á eigin fjáröflun og að sjálfboðaliðar séu virkir í því starfi. Á hverjum tíma þarf að velja verkefni í samræmi við stefnu, starfshætti og fjármagn Rauða krossins.
Sýnileiki
Mikilvægt er að almenningur og stjórnvöld viti fyrir hvað Rauði krossinn stendur. Öflugasta kynningin er fólgin í orðspori og árangri af verkefnum félagsins og framgöngu sjálfboðaliða Rauða krossins og starfsfólks.
ORÐSKÝRINGAR
|
Almannnavarnir |
Skipulag á viðbrögðum við hamförum og slysum sem daglegur viðbúnaður í samfélaginu ræður ekki við. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fer með yfirstjórn á landsvísu og lögreglustjórar í umdæmum sínum. |
| Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans. | Þetta heiti er notað þegar vísað er til bæði Alþjóðaráðsins og Alþjóðasambandsins. Notað þar sem oft er flókið að útskýra muninn á þessu tvennu. |
| Alþjóðaráðið Rauða krossins (ICRC) | Stofnun sem annast verkefni á átakasvæðum og hefur skilgreint hlutverk samkvæmt Genfarsamningunum. Skipulagslega er ICRC svissnesk sjálfseignarstofnun. |
| Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) | Samband og samstarfsvettvangur 186 landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Sinnir meðal annars verkefnum vegna náttúruhamfara. |
|
Berskjaldaður |
Það að standa höllum fæti á einhvern hátt eða eiga það á hættu að standa höllum fæti. Notað sem þýðing á enska orðinu vulnerable eða vulnerability. |
|
„Gleymd svæði“ |
Svæði þar sem neyðarástand hefur ríkt lengi en fær þó litla athygli eða aðstoð. |
| Neyðaraðstoð | Aðstoð, yfirleitt fyrsta aðstoð, sem veitt er vegna skyndilegrar neyðar en er ekki hugsuð til langframa. |
| Neyðarvarnir | Sá verkþáttur sem Rauði krossinn sinnir innan skipulags almannavarna. |
| Nærsamfélag | Næsta umhverfi, sveitarfélag og/eða starfssvæði Rauða kross deildar. |
| Sendifulltrúar | Hjálparstarfsmenn sem Rauði krossinn hefur þjálfað og sendir á vettvang vegna hjálparstarfa. |
| Stjórnvöld | Hér er vísað bæði til ríkis- og sveitarfélaga eftir samhengi. |
| Þarfagreining | Aðferðafræði til að greina hverjir eru berskjaldaðir. |