Þemaverkefni
Lindaskóli
Engjaskóli

Þemavika um Rauða krossinn í Lindaskóla

Lindaskóli í Kópavogi stóð fyrir þemaviku um Rauða krossinn meðal nemenda í 7. til 10. bekk í mars 2009. 

Vikan byrjaði á heimsókn starfsmanns frá Kópavogsdeild Rauða krossins sem kynnti Rauða krossinn fyrir nemendum. Því næst völdu nemendur sér eitt viðfangsefni til þess að vinna með og réðu útfærslu sinna verkefna. Dæmi um viðfangsefni sem hægt var að velja um og vinna út frá var sjálfboðið starf, starf Rauða krossins á Íslandi, skyndihjálp, alþjóðlegt hjálparstarf, börn og stríð, hungursneyð, hugsjónastarf Rauða krossins og þróunarlöndin. Þar að auki gátu nemendur kosið að búa til fréttir um þemavikuna.

Eftir að hafa kynnt sér og aflað upplýsinga um sitt viðfangsefni með ýmsum hætti, heimsótt sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar og landsskrifstofu Rauða krossins, unnið fjölbreytta  heimildavinnu og sjálfboðið starf, bar að líta fjölbreyttar og skemmtilegar útfærslur verkefna, líkt og meðfylgjandi myndir sýna. Þemavikunni lauk með veglegri sýningu fyrir fjölskyldur nemenda þar sem verkefni þeirra voru til sýnis.

Kópavogsdeild Rauða krossins hlaut einnig veglegan styrk í lok vikunnar frá nemendum sem vann sjálfboðið starf en þeir gáfu þrjá stóra poka fulla af ungbarnafötum sem þeir höfðu saumað sjálfir. Fötin eru send til Malaví í Afríku þar sem fátæk börn og fjölskyldur í neyð þiggja þau fegins hendi. Auk þess söfnuðu nemendur mjög miklu magni af fötum eftir fatamarkað sem farið var með í fataflokkunarstöð Rauða krossins í Skútuvogi. Síðast en ekki síst stóðu nemendur fyrir fjáröflun með því að baka og selja vöfflur og ganga um með söfnunarbauka.  
 
Hér er hægt að skoða nánari útfærslu á þemaverkefninu, glærukynningu um starf Kópavogsdeildar Rauða krossins, glærukynningu um þemaverkefnið og myndir úr Lindaskóla.