Í mörg ár hefur deildin staðið fyrir námskeiðum í skyndihjálp hér á svæðinu og hefur m.a. gefið öllum 10. bekkjum í Skagafirði undanfarin ár slíkt námskeið.
Í húsnæði deildarinnar er góð aðstaða fyrir hvers konar námskeið. Deildin hefur haldið flokkstjóranámskeið og var síðasta námskeið fjölsótt þannig að nú eru hér um 25 einstaklingar með réttindi til að opna fjöldahjálparstöð.
Deildin hefur einnig staðið fyrir námskeiðum í sálrænni skyndihjálp og hefur það nýst vel, bæði fyrir fjöldahjálparstjóra og aðra.
Öðru hvoru hefur deildin haldið námskeið fyrir verðandi barnfóstrur og heitir námskeiðið núna Börn og umhverfi. Er námskeiðið ætlað til að auka skilning á þörfum og einkennum ungra barna auk þess sem fjallað er um slysavarnir.
Námskeið hefur verið haldið fyrir sjálfboðaliða sem sinna heimsóknarþjónustu. Á stefnuskrá deildarinnar er að halda námskeið í sálrænni skyndihjálp fyrir almenning, námskeið sem heitir slys á börnum, auk þess sem fyrri námskeið verða endurtekin.