Það hafði lengi verið baráttumál að koma af stað heimsóknarþjónustu í Skagafirði til að sinna þeim sem búa við félagslega einangrun eða einsemd og var þá sérstaklega horft til aldraðra og öryrkja. Frá haustinu 2001 hefur Skagafjarðardeild RKÍ sinnt heimsóknarþjónustu í samvinnu við Sauðárkrókskirkju og Fjölskylduþjónustu Skagafjarðar. Sjálfboðaliðar eru 12 og hafa flestir einn heimsóknarvin. Farið er heim til viðkomandi aðila og spjallað, lesið o.s.frv. Rætt hefur verið um að útvíkka þjónustuna þannig að einnig verði farið til þeirra sem eru á sjúkrahúsi en þurfa á þessari þjónustu að halda.
Til að fræðast meira um þessa þjónustu má hafa samband við Skagafjarðardeild RKÍ, Sauðárkrókskirkju eða Fjölskylduþjónustu Skagafjarðar.