Verkefni
Alþjóðatorg ungmenna
Á flótta
BUSL
Félagsvinur barna af erlendum uppruna
Félagsvinur kvenna af erlendum uppruna
Fjölskyldumiðstöð
Frú Ragnheiður - Skaðaminnkun
Heilahristingur
Heimsóknaþjónusta
Hjálparsíminn 1717
Konukot
Kvennadeild
Neyðarvarnir
Skyndihjálparhópur neyðarvarna
Starf með Kvennaathvarfinu
VIN

Skyndihjálparhópur

Skyndihjálparhópur neyðarvarna Rauða kross deilda höfuðborgarsvæðisins stendur fyrir öflugu starfi.

Í 80 ár hefur útbreiðsla skyndihjálpar verið eitt af meginverkefnum Rauða kross Íslands.

Meðal verkefna hópsins er skyndihjálparfræðsla, forvarnarstarf og sjúkragæsla á mannamótum. Ef þig langar að koma og vera með þá þarftu að vera orðin(n) 18 ára og sækja námskeiðið skyndihjálp 1 við fyrsta tækifæri eftir skráningu.  Námskeiðið er 12 klst. og tekur þrjú kvöld.

Ef þú ert á aldrinum 16+ og hefur mikinn áhuga á verkefnum hópsins getur þú skráð þig og tekið þátt í æfingum, fyrirlestrum og námskeiðum fram að 18 ára afmælinu, en þá mátt þú taka þátt í öllum verkefnum hópsins.

Sjálfboðaliðar skyndihálparhópsins hafa margir starfað að skyndihjálp um nokkurra ára skeið. Hópurinn leggur metnað sinn í að vera stöðugri í æfingu og hittist á verklegum æfingum, fundum, fyrirlestrum eða til að viðhalda búnaði.

Dæmi um námskeið og fræðslufyrirlestra sem sjálfboðaliðar verkefnisins sækja eru: Skyndihjálp I og II, sérhæfð skyndihjálp, fjöldahjálparstjórn og sálrænn stuðningur (viðrun). Einnig sækja hópmeðlimir sálrænan stuðning II og III sem er sérhæfð sálræn skyndihjálp, starf á vettvangi og fíkniefnanámskeið auk annarra námskeiða og fyrirlestra.

 

Verðskrá fyrir framhaldsskólaball: 

  Undir 700 miðum Yfir 700 miðum
Ball til klukkan 01:00 20.000 25.000
Ball eftir klukkan 01:00 25.000 30.00

Verðskrá þessi tók gildi 3. mars 2011.

Allar pantanir á þjónustu eða upplýsingar sem varða skyndihjálparhópinn fer í gegnum skrifstofu Rauða krossins í Reykjavík síma 545-0407 eða netfangið urkir@redcross.is.

 

Hópstjórar skyndihjálparhópsins
Anna Eir Guðfinnudóttir
Arna Garðarsdóttir
Indíana Elín Ingólfsdóttir
Sólveig Jóhannsdóttir