Hefur þú áhuga á að vinna eða kynna þér sjálfboðið starf í Reykjavík á vegum Rauða krossins?
Hlutverk Sjálfboðamiðlunar er:
• Veita upplýsingar um möguleika á sjálfboðastarfi hjá deildinni
• Taka á móti nýjum sjálfboðaliðum og koma á tengslum við verkefnisstjóra
• Vinna að þróun nýrra verkefna með sjálfboðaliðum í samhljómi við grundvallarmarkmið og leiðarljós RKÍ
• Kynna sjálfboðastarf Reykjavíkurdeildar fyrir hópum og einstaklingum
• Samhæfa sjálfboðaliða deildarinnar í átaksverkefnum
Símanúmer Sjálfboðamiðlunar er: 545 0408
Netfang: sjalfbodamidlun@redcross.is
Nánar um hlutverk Sjálfboðamiðlunar:
•
Upplýsingar: Sjálfboðamiðlun veitir upplýsingar um þau verkefni sem sjálfboðaliðar eldri en 25 ára koma að hjá Reykjavíkurdeild. Um margvísleg verkefni getur verið að ræða og ræðst val bæði af áhuga og tíma einstaklingsins og því hvaða kröfur verkefni gerir til sjálfboðaliðans. Oftast er um föst verkefni að ræða sem sinnt er 6-12 tíma á mánuði árið um kring, ýmist vikulega eða hálfsmánaðarlega. Möguleiki er einnig á nokkura tíma þátttöku í einstöku átaksverkefnum en þau eru þó tiltölulega sjaldan.
• Viðtal og fyrstu tengsl: Til að skoða nánar hvaða verkefni hentar hverjum og einum er fólk boðað í viðtal og í framhaldi kemur starfsmaður nýjum sjálfboðaliðum í samband við viðkomandi verkefnisstjóra. Nýjum sjálfboðaliðum sem starfa í nafni Rauða krossins er ætlað að þekkja vel til hreyfingarinnar og er gert að sækja grunnnámskeið um Rauða krossinn til að kynnast hugsjónum og starfi hennar.
• Sjálfboðaliðasamningur: Þegar sjálfboðaliði byrjar í verkefni er gerður við hann sjálfboðaliðasamningur og þar með verður hann félagi í hreyfingunni og greiðir árgjald sem slíkur. Við samning undirrita sjálfboðaliðar trúnaðareið, fá skírteini, eru tryggðir á meðan á starfi stendur, njóta ýmis konar afsláttarkjara hjá fyrirtækjum og fá fréttabréf Rauða krossins, Hjálpina, heimsenda nokkrum sinnum á ári.
• Þróun nýrra verkefna: Starfsmaður Sjálfboðamiðlunar vinnur í sumum tilvikum að þróun nýrra verkefna með sjálfboðaliðum sé um hugmyndir að ræða sem Reykjavíkurdeild vill standa að. Þróun verkefna fylgir stuðningur við verkefnin og stundum umsjón um tíma eða þar til verkefni sýna sig geta verið sjálfstæð.
• Kynning á starfi Reykjavíkurdeildar: Sjálfboðamiðlun annast kynningu á sjálfboðastarfi Reykjavíkurdeildar fyrir hópa og einstaklinga eftir atvikum.
• Samhæfing sjálfboðaliða í átaksverkefnum: Átaksverkefni á vegum Rauða krossins kalla yfirleitt á þátttöku fjölda sjálfboðaliða og þarf þá að leita til sjálfboðaliða allra verkefna um mönnun þeirra. Samhæfing sjálfboðaliða er í slíkum tilvikum oft hjá Sjálfboðamiðlun, s.s. í landssöfnuninni Göngum til góðs sem hefur verið framkvæmd annað hvert ár og eins í Jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar sem Reykjavíkurdeild styrkir.
Verkefni
Átaksverkefni
Um er að ræða verkefni á vegum Rauða krossins sem almennt standa yfir í stuttan tíma. Helstu átaksverkefnin eru landssöfnunin Göngum til góðs og jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar í desember sem Reykjavíkurdeild styrkir með fjárframlagi og öflun sjálfboðaliða.
Kynningarátak Rauða krossins á innanlandsstarfi er annað hvert ár.
Landssöfnunin Göngum til góðs hefur verið framkvæmd annað hvert ár frá haustinu 2000. Sjálfboðaliðar ganga í hús og safna fyrir gott málefni. Fjármunum sem safnast í Göngum til góðs er varið til fyrfram skilgreindra verkefna hverju sinni.
Nú er ljóst að ríflega 21 milljón króna safnaðist í landssöfnun Rauða kross Íslands sem haldin var laugardaginn 2. október. Frábær þátttaka var í söfnuninni, alls um 2.500 sjálfboðaliðar um allt land gengu hús úr húsi og tókst að banka upp á hjá um 80% allra heimila á landinu.
Þetta er nokkuð hærri upphæð en safnaðist þegar gengið var til góðs fyrir tveimur árum í hrunvikunni í október 2008, en þá söfnuðust um 18 milljónir króna.
“Við erum þakklát landsmönnum fyrir að bregðast svona vel við og gefa af tíma sínum á laugardegi fyrir gott málefni. Við þökkum einnig þeim sem voru heima fyrir og tóku vel á móti sjálfboðaliðunum,” segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands “Þetta sýnir mikinn samhug í samfélaginu með meðbræðrum okkar og systrum sem búa við mjög kröpp kjör í Afríku. Það er ekki síður mikilvægt en það fé sem safnaðist.”
Lokaupphæðin er byggð á uppgjöri Rauðakrossdeilda um allt land auk þeirrar upphæðar sem safnaðist í gegnum söfnunarsíma Rauða krossins og fé sem lagt var beint inn á reikning félagsins. Allt söfnunarféð mun renna óskert til verkefna Rauða krossins í Afríku með sérstakri áherslu á barna og ungmennaverkefni í Malaví og Síerra Leóne.