Verkefnaval Reykjavíkurdeildar markast af þörf samfélagsins á hverjum tíma og hvernig þau verkefni falla að grundvallarmarkmiðum Rauða krossins og stefnu hans. Því leitast deildin við að finna sér vettvang þar sem þörfin er brýn en aðrir aðilar eru ekki að sinna. Í mörgum tilvikum hafa verkefnin sannað þörfina fyrir þjónustu hins opinbera við ákveðna hópa og þá hefur skapast svigrúm til samvinnu eða jafnvel yfirtöku opinberra aðila eða annarra.
Öll verkefni Reykjavíkurdeildar Rauða krossins byggjast að öllu eða mestu leiti á starfskröftum sjálfboðaliða. Við höfum þörf fyrir sjálfboðaliða á öllum aldri og með fjölbreytta menntun og reynslu. Sjálfboðaliðar fá þjálfun og fræðslu fyrir þau verkefni sem þeir fara til starfa í og við þá er gerður samningur sem kveður á um gagnkvæm réttindi og skyldur, t.d. eru allir samningsbundnir sjálfboðaliðar deildarinnar tryggðir í starfi. Auk þess býðst virkum sjálfboðaliðum gjaldfrjáls þátttaka á völdum námskeiðum Reykjavíkurdeildarinnar.
Verkefnaval Reykjavíkurdeildar skiptist í nokkra megin flokka.
Athvörf:
Aðstoð við þá sem minnst mega sín í samfélaginu og málsvarastarf fyrir þá hópa sem eiga sér enga málsvara er ein megin stoð Rauða kross starfs. Starfsemi Rauða krossins í Reykjavík með þeim sem eiga hvergi höfði sínu að halla hefur farið vaxandi undafarin ár.
Félagsleg einangrun:
Eitt af meginmarkmiðum Rauða krossins síðustu áratugi hefur verið að rjúfa félagslega einangrun fólks. Félagsleg einangrun er rakin til ýmissa þátta, s.s. andlegra og líkamlegra veikinda, fötlunar og öldrunar.
Fólk af erlendum uppruna:
Í stefnu Rauða kross Íslands til ársins 2010 er lögð áhersla á annars vegar aðstoð við innflytjendur við að þekkja réttindi sín í íslensku samfélagi og mikilvægi þess að innflytjendur séu fengnir til liðs við félagið. Í þessu skyni hefur Reykjavíkurdeild lagt áherslu á að bjóða innflytjendur velkomna til liðs við félagið með þátttöku í öllum þeim verkefnum sem deildin starfrækir. Einnig hafa verið sett á laggirnar sérstök verkefni í þessum tilgangi.
Neyðarvarnir:
Þegar hættuástand skapast vegna náttúruhamfara eða annarra stórslysa fer neyðarvarnarkerfi Rauða krossins í gang. Hlutverk Rauða krossins í almannavörnum ríkisins er fjöldahjálp og félagslegt hjálparstarf sem felst einkum í því að útvega fæði, klæði og húsaskjól og veita upplýsingar til fólks á neyðarstundu.
Alls eru um 750 sjálfboðaliðar Rauða krossins um allt land til taks ef hamfarir eða önnur áföll dynja yfir. Þessir sjálfboðaliðar hafa verið þjálfaðir í að setja upp fjöldahjálparstöðvar og veita sálrænan stuðning og skyndihjálp þegar mikið liggur við.
