Ólafsfjarðardeild
Stjórn
Fréttir

Ólafsfjarðardeild

Aðalgata 1 n.h.
625 Ólafsfirði
Kennitala 620780-1709
Styrkja starfið

Verkefni

Heimsóknarvinir:  Vantar fólk í þetta verkefni áhugasamir hafi samband við Sigríði Mundu.

Rauði krossinn er kynntur í grunnskólanum. Rut María Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur fer og ræðir við nemendur. Hún fer einnig og heimsækir börn í leikskólanum.

Neyðarvarnir- neyðarvarnaráætlun uppfærð, tekið þátt í æfingum á starfsvæði deildarinnar með öðrum viðbragðsaðilum. Boðið upp á námskeið fyrir stuðningsaðila deildarinnar á áætluninni eftir þörfum.

Neyðaraðstoð- neyðarbeiðnum svarað jafnt innanlands sem utan.

Skyndihjálp- boðið er upp á námskeið eftir þörfum hverju sinni. Fólki er bent á að setja sig í samband við deildina ef óskir koma um slíkt.

Sala á minningarkortum Rauða krossins.

Fatamóttaka, fatagámur er staðsettur á gámsvæði í Ólafsfirði.

Föt sem framlag: Pakkað er í ungbarnapakka sem að fara til Hvíta Rússlands. Einnig er pakkað í pakka til barna á aldrinum 2-12 ára. Þeir sem hafa áhuga á að starfa við þetta verkefni hafi samband við stjórnina. Einnig þiggur deildin prjónaða sokka, vettlinga, húfur, teppi, handklæði. Deildin þiggur jafnframt gömul sængurver eða náttsloppa sem saumað er úr.

Svæðisverkefni: Rekstur sumarbúða fyrir fatlaða einstaklinga á Löngumýri, málsvarastarf, neyðarvarnir - námskeið  fjöldahjálp og félagslegum stuðningi, skyndihjálp - skyndihjálparhópur og námskeiðahald eftir þörfum hverju sinni, deildarnámskeið og heimsóknarvinir.