Góð aðstaða er til námskeiðahalds í sjálfboðamiðstöð deildarinnar í Hamraborg 11. Meðal námskeiða í boði eru:
Almenn skyndihjálp
Fjallað er um grundvallarreglur í skyndihjálp og endurlífgun.
Sálrænn stuðningur
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geri sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum, læri hvernig þeir geti veitt stuðning og þekki hvaða úrræði samfélagið hefur upp á að bjóða í tengslum við sálræna skyndihjálp og mannlegan stuðning.
Slys og veikindi barna
Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna á sjúkrahús o.fl.
Börn og umhverfi
Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík samskipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Fjallað er um slysavarnir og algengar slysahættur og veitt ítarleg kennsla í skyndihjálp. Þátttakendur fá innsýn í sögu og starf Rauða krossins.
Heimsóknaþjónusta
Námskeiðið er ætlað sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á því að sinna heimsóknum til fólks.
Fjöldahjálp
Námskeiðið veitir fjöldahjálparstjóraréttindi. Fjallað er um skipulag almannavarna, gerð neyðarvarnaáætlana og uppsetningu fjöldahjálparstöðva.
Grunnnámskeið
Á námskeiðinu er fjallað ítarlega um sögu og starf Rauða krossins og deilda hans. Æskilegt er að allir sjálfboðaliðar sæki slíkt námskeið.
Viðhorf og virðing
Námskeiðið Viðhorf og virðing er ætlað öllum þeim sem vilja vinna gegn fordómum og mismunun gagnvart minnihlutahópum, þar sem mannúð, hlutleysi og óhlutdrægni eru höfð að leiðarljósi.
Á námskeiðinu er velt upp viðhorfum okkar og annara og þátttakendur fá á skemmtilegan hátt að horfast í augu við eigin fordóma. Áhersla er lögð á virka þátttöku og hópavinnu.
