Starf fyrir fólk með geðraskanir
Dvöl
Um Dvöl
Hér erum við
Dagskrá
Saga Dvalar
Starfsmenn Dvalar
Fréttir

Dvöl á eigin forsendum

Markmiðið með starfsemi Dvalar er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðsjúkdóma er að stríða. Gestir koma í athvarfið á eigin forsendum eða með stuðningi annarra og njóta þeirrar þjónustu sem í boði er. Áhersla er lögð á að efla sjálfstæði og virkni gestanna, en jafnhliða eru gestir aðstoðaðir við að leita nýrra leiða, sé þess óskað. Dvöl er athvarf en ekki meðferðarstofnun þar sem gestir og aðstandendur geta fengið góð ráð hjá starfsmönnum ef þeir óska þess.

Athvarfið er fyrir fólk sem á við geðræna sjúkdóma að stríða, hefur útskrifast af geðdeild eða hefur þörf fyrir að njóta félagsskapar við aðra og nota þá aðstöðu sem fyrir hendi er. Við leggjum áherslu á gagnkvæma virðingu í samskiptum gesta, starfsmanna og sjálfboðaliða og viljum gjarnan fá alla þá í heimsókn sem þurfa á athvarfinu að halda.

Góð aðstaða
Dvöl er í notalegum húsakynnum í fallegu umhverfi við Reynihvamm 43 í Kópavogi. Í húsinu er þvotta- og baðaðstaða. Starfsmenn og gestir sjá í sameiningu um að framreiða mat í hádeginu. Við athvarfið er fallegur garður sem áhugasamir gestir geta tekið þátt í að hirða. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu.

Opnunartími
9:30-15:30 virka daga. Lokað í júlí

Fjölbreytt starf
Margir koma í Dvöl einfaldlega til að slaka á, horfa á sjónvarp, ræða við aðra eða líta í blöðin. Gestir geta nýtt sér ágæta aðstöðu til listsköpunar, haft aðgang að tölvu, hlustað á tónlist eða komið sér notalega fyrir í slökunarherberginu. Gestir og starfsfólk fara í gönguferðir, heimsækja listsýningar og stunda félagslíf, m.a. í sérstökum kvennahópi. Prestur heimsækir athvarfið reglulega.