Starf fyrir fólk með geðraskanir
Dvöl
Um Dvöl
Hér erum við
Dagskrá
Saga Dvalar
Starfsmenn Dvalar
Fréttir

Saga Dvalar

Dvol2.jpg

Dvöl tók formlega til starfa á alþjóða geðheilbrigðisdeginum 10. október 1998 eftir að Kópavogsdeild Rauða krossins, Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi og Kópavogsbær höfðu skrifað undir samning um reksturinn.

Starfsemi Dvalar hefur dafnað vel frá opnun og aðsóknin verið góð. Gestir eru sammála um að notalegt andrúmsloft og vistlegt umhverfi einkenni athvarfið.

Þeir einstaklingar sem sækja athvarfið koma flestir til að rjúfa einangrun og fá stuðning. Þetta er mjög breiður hópur á aldrinum 20 til 70 ára. Bæði konur og karlar sækja athvarfið, konur hafa þó verið í meirihluta þeirra sem gestir.

Starfsemin þróaðist fljótlega út í að hafa hvatningu til sjálfstæðis og sjálfshjálpar sem einkunnarorð sín. Í kringum þetta hafa farið af stað hópar og ýmis verkefni.

Ekki þarf tilvísun læknis eða annarra meðferðaraðila til að koma í Dvöl. Gestir koma að eigin frumkvæði. Starfsfólk og aðrir er koma að starfsemi athvarfsins eru bundnir þagnarskyldu.

Dvöl athvarf, 5 ára starfsafmæli 10. október 2003 (pdf)