Alþjóðlegir foreldrar munu hittast vikulega með börnin sín. Við bjóðum velkomna foreldra allra landa sem eru með börn á aldrinum 0-6 ára og vilja hitta aðra með lítil börn. Boðið er upp samverur þar sem reglulega fara fram fjölbreyttar kynningar og fræðsla fyrir foreldrana. Leikföng fyrir börnin eru á staðnum og léttar veitingar eru í boði. Þátttaka er ókeypis. Allir eru velkomnir, innfæddir og innflytjendur, hvort sem þeir tala enga eða einhverja íslensku.
Tími: Fimmtudagar kl. 10.00-12.00 frá september til maí.
Staður: Sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands. Heimilisfang: Hamraborg 11, 2. hæð, 200 Kópavogur.
