Helstu fréttir
Fréttayfirlit-
Ertu að taka til í skápunum ?
22.05.2012Þegar tekið er til í skápum er alltaf eitthvað sem hentar ekki lengur og við viljum losa okkur við fatnað, handklæði og sængurföt, gardínur, skó og fleira. Margir spyrja hvað sé best að gera við það sem þarf að losna við, því flest okkar viljum ógjarnan henda einhverju sem aðrir geta haft gagn af. Svarið er, að Rauði krossin tekur við þessu öllu.
Lesa nánar
Söfnunargáma Rauða krossins er að finna um allt land. Á höfuðborgarsvæðinu er Rauði krossinn í samstarfi við Sorpu um söfnun á fatnaði og eru söfnunargámar á öllum endurvinnslustöðum Sorpu. Stundum eru gámar við húsnæði deilda en oft eru þeir líka við áhaldahús eða gámasvæði sveitarfélaga og víðar. Með því að setja fatnað og vefnaðarvöru í söfnunargáma Rauða krossins styrkjum við fólk í neyð. -
Fatasöfnunardagur Rauða krossins og Eimskips á Uppstigningardag 17. maí
16.05.2012Taktu þátt í fatasöfnunardegi Rauða krossins og Eimskips á morgun og komdu með gömlu fötin þín, skó, handklæði, rúmföt, gluggatjöld og aðra vefnaðarvöru á fatasöfnunarstöðvar Rauða krossins fimmtudaginn 17. maí. Allur fatnaður, hvort sem hann er slitinn eða heill, nýtist Rauða krossinum í hjálparstarfi hérlendis sem erlendis.
Lesa nánar -
Fataúthlutun Rauða krossins - sumarlokun
16.05.2012Lokað verður hjá Fataúthlutun Rauða krossins frá 1. júlí.
Fyrsta fataúthlutun eftir frí verður miðvikudaginn 15. ágúst.The Clothing Service Centre of The Red Cross is closed from 1st of July.
The Clothing Service Centre reopens on Wednesday August 15 th. -
Viltu tala meiri íslensku? fer í sumarfrí
15.05.2012Nú er samverum í verkefninu Viltu tala meiri íslensku? lokið í bili en þátttakendurnir í verkefninu voru með lokasamveru fyrir sumarfrí í liðinni viku. Hópurinn hefur hist vikulega í allan vetur í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs en þess fyrir utan hefur hann einnig hist á kaffihúsum, horft á kvikmyndir og farið á listasýningar svo eitthvað sé nefnt.
Viltu tala meiri íslensku? er verkefni sem hófst í janúar 2009 hjá Kópavogsdeild. Þar hitta íslenskir sjálfboðaliðar innflytjendur og tala saman á íslensku. Með verkefninu vildi Kópavogsdeild miða að því að ná til innflytjenda og gefa þeim tækifæri til að þjálfa sig í íslensku og bæta orðaforða sinn. Verkefninu er einnig ætlað að rjúfa félagslega einangrun innflytjenda sem og auðvelda aðlögun þeirra að íslensku samfélagi.
Á samverum gefst fólki af erlendum uppruna tækifæri til að tala íslensku frjálslega og þjálfa sig í notkun málsins við ýmsar aðstæður. Þátttaka í verkefninu hefur aukist með árunum og margir einnig verið þátttakendur í því frá því það hófst.
Lesa nánar -
Börn styrkja börn
09.05.2012Katla Pétursdóttir og vinkona hennar Ísabella Eir héldu tombólu á dögunum fyrir utan Bónus. Afraksturinn voru rúmar 2000kr sem þær gáfu Rauða krossinum.
Stuðningur tombólubarna er ákaflega mikils virði og fara peningarnir sem þannig safnast til að styrkja hjálparstarf fyrir börn. Rauði krossinn þakkar þessum ungu sjálfboðaliðum fyrir dugnaðinn.
Þeir sem vilja afhenda Rauða krossinum afrakstur af fjársöfnun sinni geta komið í Rauðakrosshúsið í Kópavogi, Hamraborg 11, alla virka daga á milli kl. 9-15.
Lesa nánar -
Góðverk fyrir önnur börn
09.05.2012Vinirnir Hlynur Freyr og Henrik úr 4. bekk í Kópavogsskóla vildu gera góðverk fyrir önnur börn. Þeir söfnuðu dósum og var afraksturinn af söfnuninni 1000kr sem þeir færðu Rauða krossinum til þess að hjálpa öðrum.
Rauði krossinn metur mikils framtak þeirra en framlagið rennur í sérstakan hjálparsjóð á landsvísu. Einu sinni á ári er ráðstafað úr sjóðnum í verkefni í þágu barna í neyð erlendis.
Lesa nánar
Þeir sem vilja afhenda Rauða krossinum afrakstur af fjársöfnun sinni geta komið í Rauðakrosshúsið í Kópavogi, Hamraborg 11, alla virka daga á milli kl. 9-15. -
Nemendur ljúka áfanga um sjálfboðið starf í MK
08.05.2012Nú hafa 15 nemendur í áfanganum SJÁ 102 við Menntaskólanum í Kópavogi lokið námi sínu á þessari önn. Markmið áfangans er að nemendur kynnist sjálfboðnu starfi hjá Rauða krossinum. Nemendurnir gátu valið um sjálfboðin störf í Rjóðrinu, hvíldarheimili fyrir langveik börn, í athvarfinu Dvöl sem er athvarf fyrir fólk með geðraskanir, í Sunnuhlíð, dvalarheimili aldraðra í Kópavogi og í Fatabúðum Rauða krossins víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu.
Lesa nánar