Kjósarsýsludeild
Fréttir
Stjórn og starfsfólk
Verkefnin okkar
Barnafata skiptimarkaður
Foreldrarölt
Fatasöfnun
Föt sem framlag
Heimsóknavinir
Námskeið
Opið hús - dagskrá
Ungmennadeild
Myndir úr starfinu

Viðburðir á opnu húsi

Í Rauðakrosshúsinu Þverholti 7 er opið hús alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10-15 og miðvikudaga kl. 13-16.  Rjúkandi heitt kaffi á könnunni, nettengdar tölvur og samvera.  Allir eru velkomnir, en atvinnuleitendur eru sérstaklega hvattir til að koma! 

Þriðjudagur 14. febrúar:
Heilbrigð skynsemi – Spjöllum um sjálfsþekkingu og innsæi og hvað einkenni og sjúkdómar eru að segja okkur.  Ræðum um ýmsar leiðir til að viðhalda heilbrigðri sál í hraustum líkama o gmiðlum til hvors annars reynslu og gullkornum.  Umsjón:  Guðrún Ólafsdóttir, hópmópati. kl. 11.

Hláturjóga -   Allir vita að hláturinn lengir lífið en hann léttir einnig lífið og hver vill ekki njóta þess að vera til og lifa lífinu lifandi?  Hláturjóga kallar gleðina fram og kemur á óvart.  Umsjón:  Ásta Valdimarsdóttir, kl. 13.

Miðvikudagur 15. febrúar:
Prjónahópur – Opinn hópur fyrir sjálfboðaliða í verkefninu Föt sem framlag og aðra handavinnuunnendur. Garn og prjónar á staðnum, kl. 13.
 
Fimmtudagur 16. febrúar:
Atvinnuleit – Eitthvað virðist vera að glæðast yfir atvinnuauglýsingunum.  Þarft þú aðstoð við að skella saman söluvænni ferilskrá, eða fá leiðbeiningar fyrir atvinnuviðtal?  Kl. 11.

Þriðjudagur 21. febrúar:
Hvernig má nýta internetið í tekjuöflun – Gylfi Þór Þorsteinsson, framkvæmdastjóri mbl.is leiðir okkur um fjölbreytta stigu internetsins. Léttur hádegisverður. kl. 11.

Miðvikudagur 22. febrúar:
Prjónahópur – Opinn hópur fyrir sjálfboðaliða í verkefninu Föt sem framlag og aðra handavinnuunnendur. Garn og prjónar á staðnum, kl. 13.

Fimmtudagur 23. febrúar:
Atvinnuleit – Eitthvað virðist vera að glæðast yfir atvinnuauglýsingunum.  Þarft þú aðstoð við að skella saman söluvænni ferilskrá, eða fá leiðbeiningar fyrir atvinnuviðtal?  Kl. 11.

Þriðjudagur 28. febrúar:
Eldgosið í Vestmannaeyjum – Páll H. Zóphoníasson fyrrverandi bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyjum segir frá eldgosinu 1973 og viðbúnaði í kringum björgun manna og mannvirkja í máli og myndum. Léttur hádegisverður. Kl. 11.

Miðvikudagur 29. febrúar:
Prjónahópur – Opinn hópur fyrir sjálfboðaliða í verkefninu Föt sem framlag og aðra handavinnuunnendur. Garn og prjónar á staðnum, kl. 13.

Fimmtudagur 1. mars:
Atvinnuleit – Eitthvað virðist vera að glæðast yfir atvinnuauglýsingunum.  Þarft þú aðstoð við að skella saman söluvænni ferilskrá, eða fá leiðbeiningar fyrir atvinnuviðtal?  Kl. 11.

Þriðjudagur 6. mars:
Frú Ragnheiður – Kynning á þessu verkefni sem byggir á skaðaminnkun og hefur þann tilgang að ná til jaðarhópa samfélagsins, t.d. útigangsfólks, heimilislausra og fíkla, og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu og almenna heilsuvernd, án fordóma eða kvaða, í þeirra nærumhverfi.  Markmið verkefnisins er að draga úr skaðsemi lifnaðarhátta jaðarhópa, t.d. sýkingum í sárum og útbreiðslu lifrarbólgu C og HIV, með því að auðvelda þeim aðgengi að sárameðferð, hreinum nálum og sprautum og almennri fræðslu um skaðaminnkun. Þannig er hægt með einföldum úrræðum að draga verulega úr skaðsemi lifnaðarhátta og draga úr þörf á dýrari úrræðum seinna meir í heilbrigðiskerfinu.  Umsjón:  Aðalsteinn hjúkrunarfræðingur, kl. 11.

Miðvikudagur 7. mars:
Prjónahópur – Opinn hópur fyrir sjálfboðaliða í verkefninu Föt sem framlag og aðra handavinnuunnendur. Garn og prjónar á staðnum, kl. 13.
 
Fimmtudagur 8. mars:
Atvinnuleit – Eitthvað virðist vera að glæðast yfir atvinnuauglýsingunum.  Þarft þú aðstoð við að skella saman söluvænni ferilskrá, eða fá leiðbeiningar fyrir atvinnuviðtal?  Kl. 11.