Hlutverk heimsóknavina er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju.
Tilgangur þjónustunnar er að vera til staðar fyrir þá sem á því þurfa að halda.
Markmiðið er að rjúfa einangrun og sýna vináttu.
Gestgjafi og heimsóknavinur gera samkomulag um hversu tíðar heimsóknirnar eru, en venjulega er miðað við einu sinni í viku.
Hvað gert er fer allt eftir óskum gestgjafa. Margir kjósa að lesa saman, hlusta á tónlist eða útvarp, spila, tefla, föndra eða tala saman. Einnig fara margir í göngu- eða ökuferðir eða fara saman á kaffihús eða bíó.
Sjálfboðaliðar sækja undirbúningsnámskeið hjá Rauða krossinum og eru bundnir trúnaði við þá sem þeir heimsækja.
|
| Hekla - stoltur heimsóknavinur |
Hundavinir eru heimsóknavinir sem heimsækja gestgjafa sína með hund.
Þó nokkur undirbúningur liggur að baki hundaheimsókna. Eigendur hundanna byrja á því að láta skoða hundinn til að ganga úr skugga um að hann henti í verkefnið. Standist hundurinn matið þarf eigandinn að ljúka þriggja tíma námskeið fyrir almenna heimsóknavini og klukkutíma námskeiði sem er sér sniðið að hundaheimsóknum. Eftir það er fundinn gestgjafi sem vill fá heimsókn frá hundi og eiganda hans.
Hér má sjá viðtal við Brynju Tomer einn hvatamann verkefnisins. Viðtalið birtist í Morgunblaðinu 17. júlí 2010.
Myndskeið frá heimsókn Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur með hundavini í athvarfið Vin og sýnt var á mbl.is þann 25. mars 2010 má finna hérna.
Ef þú vilt fá heimsóknavin Rauða krossins til þín, eða gerast heimsóknarvinur getur þú haft samband við Kjósarsýsludeild í síma 898-6065 eða í netfangið kjos@redcross.is.
Einnig má benda á að allir geta hringt í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og leitað aðstoðar við hverjum þeim vanda sem við er að etja. Síminn er gjaldfrjáls og opinn allan sólahringinn.

