Helstu fréttir
Fréttayfirlit-
Fjörugur öskudagur
22.02.2012Fjölmargar furðuverur heimsóttu Rauðakrosshúsið í Þverholti í dag og buðust til að syngja fyrir sælgæti. Ekkert sælgæti var á boðstólnum, en felstir sungu samt og fengu endurskinsmerki eða blöðru að launum.
Myndir af nokkrum gestanna má finna á Facebook-síðu deildarinnar hérna.
Lesa nánar -
Sjálfboðaliðar Kjósarsýsludeildar heimsækja írska Rauða krossinn
08.02.2012Í framhaldi af velheppnaðri Íslandsdvöl Meave O´Reilly sjálfboðaliða frá Cork nú á dögunum, fóru tveir sjálfboðaliðar úr ungmennadeild Kjósarsýsludeildar til Írlands að kynna sér starf Rauða krossins þar.
Þau Arnar Benjamín Kristjánsson og Þrúður Kristjánsdóttir skoðuðu aðalskrifstofuna í Dublin og hittu þar Donal Forde, framkvæmdastjóra írska Rauða krossins. Donal kvaðst mjög ánægður með þetta samstarf milli landanna.
Lesa nánar -
Gestir Rauðakrosshússins í Mosó taka þátt í Lífshlaupinu
01.02.2012Lífshlaupið hefst í dag og ætla gestir Rauðakrosshússins í Mosó að taka þátt í vinnustaðakeppninni. Í fyrra voru þrjú lið skráð til leiks hjá Rauðarkosshúsinu og stefnt á að ná því einnig í ár. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ þar sem allir landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er. Þátttakendur skrá niður alla hreyfingu (sund, ganga, skíði, hlaup, dans o.s.frv.) - minnst 30 mínútur á dag. Skipta má tímanum upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn, en samanlagt verður hreyfingin að ná að lágmarki 30 mínútum.
Lesa nánar -
Námskeið í skyndihjálp og sálrænum stuðningi
01.02.2012Hafin er skráning á námskeið hjá Kjósarsýsludeild í sálrænum stuðningi I og skyndihjálp 4 stundir. Námskeiðin verða haldin í Rauðakrosshúsinu Þverholti 7 þann 15. og 21. febrúar. Nánari upplýsingar og skráning undir viðburðaryfirlitinu hér hægra megin á síðunni.
Lesa nánar