Hvar störfum við
Ísland
Sierra Leone
Malaví
Kákasuslöndin
Palestína
Hvíta-Rússland

Síerra Leone

Rauði kross Íslands styður 150 ungmenni á aldrinum 14-18 ára árlega til náms og starfsþjálfunar í Moyamba athvarfinu í Síerra Leone.

Styrkja starfið sierra_okt10(24).jpg
 
 

Sierra Leone er meðal þeirra landa þar sem lífskjör eru hvað verst.  Nærri helmingur þjóðarinnar er á aldursbilinu 0 – 15 ára eða 44,5%. Grimmileg borgarstyrjöld geisaði í landinu um árabil með nauðungarþátttöku þúsunda barna. Þó er landið, sem lengi vermdi botnsætið á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna nú farið að sigla upp á listanum.

Rauði kross Íslands styður 150 ungmenni árlega til náms og starfsþjálfunar í Moyamba athvarfinu í Síerra Leone. Ungmennin læra að lesa og skrifa og stunda iðnnám í valinni grein. Hver nemandi fær áhöld fyrir sitt sérsvið sem hann nýtir í náminu og fær svo til eignar eftir útskrift. Þannig fá ungmenni í trésmíðanámi sagir, hamra, hefla og annað slíkt en klæðskeranemarnir fá meðal annars forláta saumavél.

Rauði krossinn í Síerra Leone heldur úti nokkrum slíkum athvörfum víðs vegar um landið, en Rauði kross Íslands hefur stutt starfsemina frá 2004.
 

 

 

Myndband unnið í samstarfi við Land Rover sem stutt hefur starfsemina