Um 260 sjálfboðaliðar sinna barna- og ungmennastarfi Rauða krossins um allt land, enda víða fastur liður í starfi deilda. Sérstökum ungmennadeildum er þó ekki að fjölga en nokkrar deildir bjóða hins vegar upp á afmörkuð verkefni sem eru sérstaklega ætluð ungmennum, auk þess sem fjölmargar deildir eru í samstarfi við skóla og félagsmiðstöðvar með ýmsa fræðslu og tímabundið samstarf, m.a. tengt kynningum og fjáröflunum.
Einnig er lögð áherslu á að aðstoða fólk í gegnum yfirstandandi þrengingar í íslensku samfélagi með því að bjóða börnum og unglingum upp á spennandi námskeið yfir sumartímann, þeim að kostnaðarlausu eða gegn vægu verði.
Þá hafa Rauði krossinn og Vinnumálastofnun samstarf um viðamikið verkefni til að tryggja sjálfboðastörf fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 18–24 ára. Þetta er hluti af átaki félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar sem kallast Ungt fólk til athafna.
Tengdar fréttir
Fréttayfirlit-
Skyndihjálparkennsla hjá Móral
11.05.2012 -
Skyndihjálparkennsla hjá Móral
11.05.2012 -
Ungmennin skelltu sér í Gaflaraleikhúsið
27.04.2012 -
Ungmennin skelltu sér í Gaflaraleikhúsið
27.04.2012 -
Vitundarvakningarviðburður gegn kynþáttamisrétti
26.03.2012 -
Ný stjórn URKÍ-Kjós
01.03.2012 -
Góðverkavika á Selfossi, börnin gefa fátækum föt
24.02.2012 -
Öskudagurinn í Hafnarfirði
21.02.2012 -
Around the world with art
08.02.2012 -
Eldhugastarf í félagsmiðstöðvum Kópavogs
01.02.2012