Útbreiðsla skyndihjálpar hefur verið eitt af meginverkefnum Rauða kross Íslands í um 80 ár. Allt frá stofnun hreyfingarinnar í Genf árið 1863 hefur verið lögð áhersla á skyndihjálp hjá landsfélögum Rauða krossins um allan heim. Rauði kross Íslands á gott samstarfi við landsfélög hreyfingarinnar víða um heim á þessu sviði.
Í nóvember 2001 undirrituðu Rauða kross Íslands og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, nú velferðarráðuneytið, samkomulag um hlutverk og ábyrgð félagsins í skyndihjálparmálum. Markmiðið með samkomulaginu er að efla og breiða út skyndihjálparþekkingu hér á landi.
Rauði kross Íslands býður upp á vönduð og hagnýt námskeið í skyndihjálp, sem sniðin eru að þörfum hópa, s.s. almennings, fagaðila og fyrirtækjastarfsmanna, bæði hvað varðar lengd og efnistök.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna rétt viðbrögð í neyð og einfaldar aðferðir skyndihjálpar. Allt fræðsluefnið er gefið út af Rauða krossi Íslands.
Fréttir og greinar
Fréttayfirlit-
Skyndihjálparkennsla hjá Móral
11.05.2012 -
Árið 2011 mikið annaár hjá skyndihjálparhópi höfuðborgarsvæðis
23.04.2012 -
Árið 2011 mikið annaár hjá skyndihjálparhópi höfuðborgarsvæðis
23.04.2012 -
Víkurdeildin hélt 112 daginn hátíðlegan
21.02.2012 -
Björguðu mannslífum
20.02.2012