Sjúkrabílar
Að ná í sjúkrabíl
Kílómetrastaða

Sjúkraflutningar Rauða krossins

Á hverjum degi flytja sjúkrabílar að jafnaði milli fjörutíu og fimmtíu sjúklinga

Styrkja starfið sjukrabilar.jpg

Sjúkrabílafloti Rauða krossins

Allir sjúkrabílar á Íslandi, alls 77 á 40 stöðum á landinu, tilheyra Rauða krossinum sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur. Margar deildir félagsins voru stofnaðar af frumkvöðlum sem vildu tryggja þjónustu sjúkrabíls í sínu sveitarfélagi. Nú eru bílarnir reknir með það í huga að um allt land séu ávallt til reiðu vel útbúnir bílar til sjúkraflutninga.

Á hverjum degi allt árið um kring flytja sjúkrabílar Rauða kross Íslands að jafnaði milli 40 og 50 sjúklinga. Á venjulegu ári fara bílarnir í 20-24 þúsund flutninga en heildarútköll eru um 32 þúsund.

Tæknivæddir sjúkraflutningar eru árangur tæplega 80 ára starfs Rauða krossins. Þegar félagið var stofnað 1924 var einn sjúkrabíll til á landinu, staðsettur í Reykjavík, og þeir sem ekki gátu farið með honum fóru á sjúkrahús annað hvort í burðargrind, með hesti eða þá alls ekki. Tveimur árum síðar var fyrsti sjúkrabíll Rauða kross Íslands keyptur til landsins, ítalskur Fiat með kraftmikla vél og góða aksturshæfileika í snjó.

Samkvæmt samningi heilbrigðisráðuneytisins og Rauða krossins annast Rauði krossinn útvegun, innkaup og rekstur bifreiða og tækjabúnaðar til sjúkraflutninga um allt land fyrir ríkið. Samningurinn var endurnýjaður í ársbyrjun 2006 og gildir til ársloka 2010.

Síðan samningur við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um rekstur bílanna var undirritaður í árslok 1997 hefur meiri hluti bíla verið endurnýjaður, með það í huga að sameina öryggi og hagkvæmni í rekstri. Samkvæmt samningnum er greiðsluþátttaka sjúklinga í algjöru lágmarki og ráðuneytið lagði árið 2006 92 milljónir króna til sjúkraflutninganna en Rauði kross Íslands 37 milljónir.

Fyrirspurnir sendist Marinó Má Marinósyni.