Vin var stofnað 8. febrúar 1993 í kjölfar framkvæmdaáætlunar hreyfingarinnar fyrir tímabilið 1990-2001. Þar kemur m.a. fram vilji til að bæta hag þeirra sem minnst mega sín, þar á meðal geðfatlaðra.
Starfshópur um málefni geðfatlaðra tók til starfa 1992 og hafði það verkefni að kanna með hvaða hætti þörfum þeirra yrði best mætt úti í þjóðfélaginu. Niðurstaðan var athvarf sem opið væri á daginn og byði upp á margvíslega þjónustu. Eftir nokkurn undirbúning og meðal annars heimsókn til Svíþjóðar til að skoða sambærilega staði tók húsið til starfa.
Stuðningur við geðfatlaða er forgangsverkefni hjá Rauða krossi Íslands. Kópavogsdeild RKÍ hefur síðan ásamt Kópavogsbæ og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi opanað athvarfið Dvöl í Kópavogi og Akureyrardeild RKÍ ásamt Akureyrabæ og Geðverndarfélagi Akureyrar opnað athvarfið Laut. Einnig hafa fleiri deildar kannað aðstæður geðfatlaðra á sínu svæði og gert svokallaðar þarfagreiningar.
Gefið var út vandað afmælisrit 8. febrúar 2003
Hér er hægt að sjá efni blaðsins:
Fyrri hluti (PDF)
Seinni hluti (PDF)