Húsreglur
- Neysla áfengis og/eða annara vímuefna er bönnuð í húsinu
- Meðferð tóbaks takmarkast við reykherbergi
- Farið úr útiskóm og gangið vel um húsið okkar
- Í húsinu gilda almennar kurteisis- og umgengnisreglur
- Allt ofbeldi leiðir til að viðkomandi er vísað út
- Brot á þessum reglum varða brottvikningu um skemmri eða lengri tíma
Öll vinna í athvarfinu einkennist af mannúð, virðingu, samhyggju og heiðarleika skv. grundvallarmarkmiðum Rauða krossins
- Lögð er áhersla á að mynda tengsl, byggja upp traust og horfa á getu hvers og eins
- Trúnaðar er gætt um öll þau mál sem fram fara í athvarfinu. Undantekningu má einungis gera samkvæmt lagaboði eða ef viðkomandi er sjálfum sér eða öðrum hættulegur
- Starfsfólk/sjálfboðaliðar/samfélagsþjónar afla ekki upplýsinga eða gefa upplýsingar um gesti nema með samþykki þeirra. (Undantekning sama og að ofan)
- Unnið er að málsvarahlutverkinu með því að beita sér fyrir bættri og samhæfðari þjónustu við geðsjúka og að þeir fái bestu þjónustu sem völ er á
- Unnið er gegn mannréttindabrotum, fordómum, stimplun og útskúfun sem gestir verða fyrir vegna síns sjúkdóms
- Starfsfólk/sjálfboðaliðar/samfélagsþjónar notfæra sér ekki tengsl við gesti sér til framdráttar
- Starfsfólk/sjálfboðaliðar/samfélagsþjónar stofna ekki til kynferðislegs sambands við gesti
- Starfsfólk viðheldur þekkingu sinni, endurnýjar hana og leitast við að vera í sambandi við framsækna aðila í málaflokknum, innanlands sem utan