Markmið athvarfa Rauða krossins er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðsjúkdóma að stríða.
Gestakomur í Vin á árinu voru alls 5024. Að meðaltali komu 22 á dag (fyrir utan aðra gestkomandi eins og starfsfólk annarra úrræða, nema, sjálfboðaliða, samfélagsþjóna, aðstandendur osfrv. sem voru samtals 629 á árinu eða þrír á dag að meðaltali).
Matargestakomur voru 2330 á árinu og að meðaltali borðuðu 11 á dag (fyrir utan þá matargesti sem voru í boði hússins hverju sinni eins og starfsfólk og sjálfboðaliðar en þeir voru 782 eða þrír að meðaltali á dag).
Um 340 einstaklingar heimsóttu athvarfið, 21% þeirra voru konur. 359 gestakomur voru fyrir utan hefðbundinn opnunartíma, þ.e.a.s. á opnunartíma sjálfboðaliða á sunnudögum yfir vetrarmánuðina.
Hefðbundin starfsemi
Í maí og október 2010 voru haldnir skipulagsfundir með gestum athvarfsins. Rætt var um dagskrána almennt, um virkni, valdeflingu og markmið athvarfsins. Fyrrgreind atriði voru svo mótuð í samræmi við óskir og þarfir gestanna í ákveðinn dagskrárramma sem svo er aðlagaður og nánar útfylltur einu sinni í viku á húsfundi með gestum.
Í sumar var farið í gönguferðir, nánasta umhverfi notað til þjálfunar á einbeitingu og athygli og heilsuhópur fundaði einu sinni viku. Heilsa og heilsutengd umræða er stöðug í Vin. Í byrjun árs var sett í gang verkefni þar sem unnið var með heilsutengda markmiðasetningu. Starfsfólk aðstoðaði við markmiðasetningu hvers og eins sem svo fékk stuðning, aðhald og hvatningu á leið sinni að settu markmiði. Við daglega matargerð er ekki síst lögð áhersla á mikilvægi þess að borða hollt og rétt. Hinn holli matseðill er þó reglulega brotinn upp með árstíðatengdum mat og hátíðarmat.
Mikið var umleikis fyrir alþjóðlegan geðheilbrigðisdag í ár þar sem yfirskriftin var “Geðheilsa og langvinn veikindi: Þörf fyrir samfellda og samhæfða þjónustu“. Gestir Vinjar tóku þátt í deginum á ýmsan hátt. Starfsmaður frá Vin sat í undirbúningsnefnd um skipulag dagsins. Starfsfólk og stór hópur gesta Vinjar fóru saman út að borða í tilefni dagsins.
Talsvert var um að nemar og starfsfólk í geðheilbrigðiskerfinu kæmi í heimsókn í Vin. Um var að ræða annarsvegar vettvangsheimsóknir og hinsvegar starfsfólk sem kom með nýja notendur þjónustunnar í kynnisheimsókn. Starfsfólk, nýliðar sem og eldra, víða úr starfsmannaneti Rauða kross Íslands kom reglulega í heimsókn en einnig fékk Vin erlenda gesti sem hingað voru komnir til að kynna sér málaflokkinn. Auk ofangreindra komu einstaklingar í starfsþjálfun frá Námsflokkum Reykjavíkur, sjálboðaliðar úr ýmsum verkefnum deilda Rauða kross Íslands, aðrir sjálfboðaliðar, starfsmenn annarra úrræða og aðstandendur gesta svo einhverjir séu nefndir.
Margir styrktu starfsemi athvarfsins á árinu. Sem dæmi má nefna Fons ehf. sem gaf flugmiða í ferðasjóð Víðsýnar á þessu ári. Listamaðurinn Tolli gaf tvö málverk í jólahlutaveltu Ferðafélagsins og LS Retail veitti skákfélagi Vinjar fjárstuðning. Ennfremur var auðsótt að ná hagstæðum samningum víða þar sem keyptar voru vörur og þjónusta af einhverju tagi. Einstaklingar komu einnig færandi hendi á árinu með ýmsar góðar gjafir eins og mat, bækur, fræðslu eða tónlist.
Í ár voru sparnaðaraðgerðir í rekstri Vinjar sem lutu að því að lokað var í Vin einn dag í hverjum mánuði. Af hefðbundnum opnunartíma Vinjar var lokað einn dag á árinu vegna starfsdaga starfsfólks og tvo daga vegna tveggja dagsferða Ferðafélagsins Víðsýnar en þá fóru starfsmenn og sjálboðaliðar með gestum/ferðafélögum í umræddar ferðir.
Notendaáhrif
Áfram var unnið að því að virkja gesti til þátttöku í starfseminni og ákvarðanatöku m.a. með því að þeir stjórni húsfundum og gangi í flest þau störf sem unnin eru í athvarfinu allt eftir getu hvers og eins. Í Vin mótast starfið að þörfum og færni gestanna. Í þessu sambandi er lögð áhersla á að draga fram hjá hverjum og einum þá styrkleika sem í honum búa og styðja þannig viðkomandi, þrátt fyrir veikindi sín og ýmsa erfiðleika, til að ná markmiðum sem þeir setja sér til aukinna lífsgæða.
Sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðahópurinn hefur haft veg og vanda að opnu húsi á sunnudögum yfir vetrarmánuðina og annan dag jóla. Þetta framlag er ómetanlegt. Á árinu hafa 12 manns verið virkir í hópnum. Reglulega er fundað með hópnum og boðið upp á fræðslu.
Sjálfboðaliði á vegum AUS hefur verið í Vin á árinu sem endranær. Í maí kom Lenka Müllerova frá Tékkalandi og verður hún fram til maí 2011. Þess má geta að starfsmaður Vinjar og Lautar á Akureyri fóru á ráðstefnu á Spáni á árinu í tengslum við alþjóðlegu ungmennaskiptin, athvörfunum nánast að kostnaðarlausu. Á virkum dögum hefur skoski sjálfboðaliðinn Elaine komið reglulega allt árið og verið Vin ómetanlegur stuðningur. Tvisvar í viku hefur hin tyrkneska Olga komið og stýrt leikfimi og stutt gesti við handavinnu og myndlist samhliða þvi að hjálpa til við allt mögulegt sem snýr að starfseminni í húsinu. Sjálboðaliðarnir hafa allir verið duglegir að kynna sína heimahaga á formlegum uppákomum í húsinu.
Heilsuefling
Áfram var heilsuefling ofarlega í huga Vinjar. Léttar æfingar og teygjur voru reglulega tvisvar í viku og heilsuhópurinn fundaði reglulega. Sérstakur heilsudagur er einu sinni í viku þar sem áherslan þann daginn er bæði andleg og líkamleg heilsa og sérstakt heilsufæði er á boðstólnum. Slökun var einu sinni í viku og umræðu og fræðslu haldið áfram um mikilvægi heilsueflingar, heilbrigðari matarvenjur og tengsl við geðraskanir. Stuðningshópur um reykleysi hefur fundað einu sinni í viku í Vin undir stjórn Margrétar Eiríksdóttur geðhjúkrunarfræðings í vettvangsteymi Kleppspítala. Yfir tíu af fastagestum athvarfsins hafa hætt að reykja í kjölfar þáttöku í stuðningshópnun. Neikvæð heilsufarsleg áhrif reykinga eru tíðrædd i Vin og varð það úr í sumar að reykaðstöðunni í athvarfinu var lokað til frambúðar í kjölfar lýðræðislegrar kosningar um málið.
Skákfélag Vinjar
Heilmikið var um að vera hjá skákfélagi Vinjar 2010. Félagsmenn eru komnir yfir 40, gestir Vinjar auk vina og velunnara. Nokkrir aðilar höfðu félagaskipti og komu í félagið úr öðrum og öflugum skákfélögum. Samstarf við Hrókinn var gott sem alltaf áður. Teflt var eftir sem áður einu sinni í viku og mót haldin u.þ.b. mánaðarlega. Auk þess var haldið byrjendanámskeið snemma á árinu. Af mótum má nefna mót haldin í Rauðakrosshúsinu og hjá Kjósarsýsludeild. Stórmót var haldið, Vin-Open, sem hliðarverkefni Reykjavík-Open þar sem tugir erlendra meistara koma í borgina auk allra afmælismótanna en þó nokkrir hafa verið heiðraðir og sýndar þannig þakkir með afmælismótum í Vin. Auk ofantaldra skákmóta má nefna jólamót skákfélagsins þar sem 24 þátttakendur mættu og heiðursgestur var borgarstjórinn í Reykjavík, jólamót milli geðdeilda/athvarfa/klúbba sem haldið var á Kleppsspítala og Íslandsmótið í Víkingaskák.
Skákfélagið sendi að þessu sinni tvö lið á Íslandsmót skákfélaga þar sem A liðið tryggði sér þátttöku í þriðju deild með góðum árangri á síðasta tímabili. B liðið tekur þátt í 4. deild og þar fá margir að spreyta sig á stórmóti í fyrsta sinn.
Skákin er gífurlega mikilvæg fyrir marga gesti Vinjar enda margir sem finna sér farveg í athvarfinu eftir að hafa tengst skákklúbbnum. Í samræmi við niðurstöður ýmissa rannsókna er reynslan í Vin að regluleg og skipulögð skákiðkun bæti einbeitingu, rökhugsun og sjálfsaga auk þess gríðarlega mikilvægis að einstaklingnum finnist hann tilheyra hópi og hafi möguleika á að kynnast nýju fólki. Þannig getur skákin haft mannbætandi áhrif sem nýtist langt út fyrir skákborðið.
Á árinu var gerð heimildarmynd um skákfélag Vinjar. Árni H. Kristjánsson sagnfræðingur - sem hefur teflt um árabil með Taflfélagi Reykjavíkur - og nemandi í hagnýtri menningarmiðlun í Háskóla Íslands gerði myndina. Árni er nú félagi í skákfélagi Vinjar.
Ferðafélagið Víðsýn
Starfið var öflugt sem endranær. Stjórn félagsins hélt aðalfund, einn félagsfund og fimm stjórnarfundi á árinu. Auk þess hittist hluti af stjórn á fjölmörgum óformlegum undirbúningsfundum vegna ferða ársins. Virkir ferðafélagar eru nú 46. Á félagsfundi í haust var ákveðið að halda skyldi í menningarferð til Bretlands vorið 2011 ef hagstæð kjör næðust.
Stjórnin vann að tveimur fjáröflunum á árinu m.a. með því að halda bingó um vorið þar sem söfnuðust kr. 62.834,- að frádregnum kostnaði og jólahlutaveltu í desember þar sem félaginu tókst að afla kr. 394.000,-. Auk þess fékkst einn styrkur frá Reykjavíkurborg á árinu að upphæð kr. 95.000,- .
Stjórnin leitast við að skipuleggja ferðir félagsins þannig að sem flestir félagsmenn finni eitthvað við sitt hæfi. Menning og fræðsla er mikilvæg í Víðsýn og félagar eru virkir við undirbúning ferða. Einnig leitast félagið við að koma á sambandi við einhverja sem sinna geðheilbrigðismálum á hverjum stað, bæði heima og erlendis.
Árið 2010 var sannkallað ferðaár hjá Víðsýn. Farið var í alls fimm dagsferðir auk einnar fimm daga ferðar innanlands. Í dagsferðunum var farið í Dalina, hring um Snæfellsnes, haustlitaferð um Þingvelli, heilsueflingarferð þar sem gengin var Lambafellsklofi og svo aðventuferð um Álftanes og Hafnarfjörð. Stóra ferðin var um Norðausturland þar sem gist var á Stóru Tjörnum og farið í dagsferðir þaðan. Meðal annars var farið í Ásbyrgi, að Mývatni og skoðunarferð um Húsavík.
Boðið var upp á fræðslu sem tengdist ferðalögum ferðafélagsins og komu ýmsir góðvinir athvarfsins þar við sögu sem höfðu frá skemmtilegri reynslu og þekkingu af ferðalögum og ákvörðunarstöðunum að segja.
Allir ferðafélagar hafa lýst jákvæðum áhrifum af því að taka þátt í starfsemi ferðafélagsins. Jákvæðum áhrifum á viðhorf, skoðanir og sjálfsmynd þar sem birtingarformið er aukið sjálfstæði, sjálfstraust, sjálfsstjórn og félagsfærni sem leiðir til aukinnar virkni og færni í að takast á við lífið og tilveruna.
Unnið var að endurnýjun á heimasíðunni en þar má nú sjá ljósmyndir úr starfseminni og nýjar og ítarlegri upplýsingar en áður var. Nú er hægt að lesa stöðugt nýjr fréttir og greinar af starfseminni, dagskrá hverrar viku, um félögin innan Vinjar eins og Ferðafélagið Víðsýn og skákfélag Vinjar, árskýrslur eru aðgengilegri og fleira upplýsandi efni er sett fram á nýjan og aðgengilegri hátt.
Niðurlag
Félagsleg einangrun og einmanaleiki koma oft í veg fyrir að einstaklingum með langvinna geðskjúkdóma líði vel. Sýnt þykir að ástundun félagslífs og samfélag við aðrar manneskjur bæti mjög lífsgæði þessara einstaklinga. Í þessu tilliti er starfsemin sem fram fer í Vin gríðalega mikilvæg þessum einstaklingum.
Vin getur boðið þessum hópi fjölbreytt félagslíf, sálfélagslegan stuðning sem og annan stuðning við hæfi þar sem engar kröfur eru gerðar til viðkomandi um ákveðna virkni eða hæfni heldur öllum tekið á eigin forsendum. Vin skiptir því augljóslega mjög miklu máli fyrir stóran hóp fólks sem á erfitt með að finna sig annarsstaðar, eru miklir einstæðingar, hafa veikst ungir í langan tíma og eiga því oft mjög takmarkaða möguleika í félagslegu tilliti án skilyrða og stuðnings eins og boðið er upp á í Vin.