Jarðskjálfti sem mældist 7,3 á richter reið yfir Haítí þann 12. janúar 2010. Upptök hans voru við höfuðborgina Port-au-Prince sem varð verst úti en einnig urðu miklar skemmdir í nágrannasveitarfélögum.
Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Haítí brugðust undir eins við, og unnu í kapp við tímann við björgun og aðhlynningu slasaðra. Sjálfboðaliðarnir unnu einnig að dreifingu hjálpargagna og aðstoðuðu við umönnun á sjúkrahúsum.
Tíu neyðarteymi Alþjóða Rauða krossins voru tafarlaust send á vettvang. Þar var um að ræða sérfræðinga í dreifingu hjálpargagna, heilsugæslu, uppsetningu neyðarskýla, birgðaflutningum og hreinsun vatns, auk sérhæfðra lækna og hjúkrunarfræðinga.
Alþjóða Rauði krossinn áætlar að aðstoða um 300,000 manns næstu þrjú árin.
Rauði kross Íslands hóf þegar landssöfnun fyrir fórnarlömb jarðskjálftans. Fyrsti íslenski sendifulltrúinn, Hlín Baldvinsdóttir, hélt til Haítí þann 14. janúar, tæpum 2 sólarhringum eftir að skjálftinn reið yfir. Síðan hefur á þriðja tug sendifulltrúa starfað á Haítí.
Sjálfboðaliðar Rauða kross Íslands pökkuðu einnig 1.000 skyndihjálparpökkum fyrir skyndihjálparteymi sem veittu slösuðum aðstoð á Haítí. Þetta var hluti af nauðsynlegum hjálpargögnum sem Alþjóða Rauða krossinn bað sérstaklega um. Hjálpargögnin voru send með flugvél sem flutti íslensku alþjóðabjörgunarsveitina frá Haítí. Rauði kross Íslands sendi einnig loftkælibúnað fyrir sjúkraskurðstofur, rafstöðvar og rafala fyrir starfsemi tjaldsjúkrahúsa og færanlegra sjúkrastöðva með vélinni. Fjöldi fyrirtækja á Íslandi gaf að hluta þann búnað sem sendur var utan. Var sá stuðningur ómetanlegur og kann Rauði kross Íslands þeim bestu þakkir fyrir.
Fréttir
-
Sálfélagslegur stuðningur mikilvægur íbúum Haítí
12.01.2012 -
Hjúkrunarfræðingur Rauða kross Íslands við störf á Haítí
16.05.2011 -
Nemendur í Foldaskóla styrkja börn á Haítí
28.01.2011 -
15 milljónir til hjálparstarfs Rauða krossins í Austur Kongó og á Haítí
13.01.2011 -
Enn er neyð á Haítí
12.01.2011 -
600 tombólubörn aðstoða 600 börn á Haítí
11.01.2011 -
Eitt ár liðið frá jarðskjálftanum á Haítí: Rauði krossinn sendi 27 hjálparstarfsmenn og 80 milljónir til neyðaraðstoðar
10.01.2011 -
Rauði kross Íslands vinnur gegn útbreiðslu kóleru á Haítí
02.12.2010 -
Kóleran er tifandi tímasprengja
12.11.2010 -
Höfum alveg séð það verra
09.11.2010 -
Rauði krossinn eflir neyðarvarnir vegna fellibyls á Haítí
05.11.2010 -
Rauði krossinn berst við kóleru á Haítí
29.10.2010 -
Haítí: Styrkur til að sinna grunnþörfum
10.09.2010 -
Tveir hjálparstarfsmenn Rauða krossins til viðbótar halda til Haítí
30.07.2010 -
Hálft ár frá jarðskjálftum á Haítí og enn ríkir neyð
12.07.2010 -
Enn ríkir neyð á Haítí, sex mánuðum eftir skjálftann
11.07.2010 -
Sex mánuðir liðnir frá hamförunum á Haítí
09.07.2010 -
3 sendifulltrúar Rauða kross Íslands á leið til Haítí
20.06.2010 -
Sálfélagslegur stuðningur við íbúa Haítí.
16.06.2010 -
Skelfilegt ástand á Haítí
15.06.2010 -
Tuttugasti og fyrsti hjálparstarfsmaður Rauða krossinn kominn til Haítí
10.06.2010 -
Hugum að Haítí
02.06.2010 -
Tveir íslenskir hjúkrunarfræðingar til starfa fyrir Rauða krossinn á Haítí
31.05.2010 -
Tveir hjúkrunarfræðingar halda til starfa fyrir Rauða krossinn á Haítí og í Pakistan
14.05.2010 -
Flóamarkaður á Laugum til styrktar Haítí
11.05.2010 -
Langtímauppbygging verður í að minnsta kosti tíu ár ef ekki lengur
05.05.2010 -
Börn á Íslandi safna fyrir börn á Haítí
03.05.2010 -
Tveir hjálparstarfsmenn Rauða krossins héldu til Haítí í dag
28.04.2010 -
Við náum aldrei að sinna öllum þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Bréf frá sendifulltrúa Rauða krossins á Haítí
26.04.2010 -
Sérfræðingur í dreifingu hjálpargagna á leið til Haítí
13.04.2010 -
Fjórtándi hjálparstarfsmaður Rauða krossins til starfa á Haítí
31.03.2010 -
Rauði krossinn og Slökkviliðið senda sjúkraflutningamann til starfa á Haítí
12.03.2010 -
Börnin á Álfaborg safna fyrir Haítí
01.03.2010 -
Grunnskólabörnin á Flateyri halda risatombólu
23.02.2010 -
Erfitt en gott að gera gagn
23.02.2010 -
Seldu myndir til styrktar börnum á Haítí
19.02.2010 -
Tæmdu sparibaukana fyrir börnin á Haítí
15.02.2010 -
Sex íslenskir hjálparstarfsmenn Rauða kross Íslands á leið til Haítí
12.02.2010 -
Fermingarbörn á Álftanesi söfnuðu fyrir Haíti
11.02.2010 -
Til hjálparstarfs á Haítí
09.02.2010 -
Þrír íslenskir sérfræðingar í uppbyggingarteymi Alþjóða Rauða krossins á Haítí
09.02.2010 -
Tveir íslenskir hjúkrunarfræðingar til Haítí á vegum Rauða krossins
04.02.2010 -
Sálrænn stuðningur á Haítí: Að græða hin ósýnilegu ör
03.02.2010 -
Dvalargestir Heilsustofnunar safna fyrir Haítí
03.02.2010 -
Félag bókagerðarmanna styrkir hjálparstarfið á Haíti
02.02.2010 -
Saga af munaðarlausum dreng á Haítí
28.01.2010 -
Hjálparstarf Rauða krossins á Haítí komið á fullan skrið
28.01.2010 -
Rauði kross Íslands á Haítí - myndir
26.01.2010 -
Íslenskur drengur gleður munaðarlausar frænkur á Haítí
25.01.2010 -
Góðum árangri náð miðað við erfiðar aðstæður
25.01.2010 -
Tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands á Haítí
23.01.2010 -
Hjálpargögn Rauða kross Íslands komin til Haítí
22.01.2010 -
Fæðing á norska sjúkrahúsinu á Haítí
21.01.2010 -
Brýnt að gera að meiðslum fórnarlamba skjálftans sem fyrst
21.01.2010 -
Gistir í tjaldbúðum
21.01.2010 -
Hjálpargögn Rauða krossins komin til Haítí í kvöld
20.01.2010 -
Sjálfboðaliðar Rauða krossins pökkuðu 1.000 skyndihjálpargögnum til Haítí
19.01.2010 -
Íslenskur læknir á leið til Haítí ásamt hjálpargögnum Rauða krossins
19.01.2010 -
Rauði kross Íslands sendir hjálpargögn beint til Haítí
18.01.2010 -
Hlín komin til Port-au-Prince
17.01.2010 -
Alþjóða Rauði krossinn eykur neyðarbeiðni um 100 milljón dollara vegna Haítí
16.01.2010 -
Næstu tveir sólarhringar skipta sköpum við björgun mannslífa á Haítí
15.01.2010 -
Níu milljónir safnast á fyrsta sólarhring vegna Haítí
14.01.2010 -
Íslenskur sendifulltrúi á leið til Haítí í dag
14.01.2010 -
Alþjóðleg neyðarteymi og hjálpargögn á leiðinni til Haítí
13.01.2010 -
Rauði kross Íslands með símasöfnun vegna jarðskjálftans í Haítí
13.01.2010
