Flóðbylgjan fimm árum síðar
Fimm árum síðar
Fréttir
Sendifulltrúar í Indónesíu
Sendifulltrúar á Sri Lanka
Raddir sendifulltrúa - myndband
Sálrænn stuðningur Srí Lanka
Lahewa
Lhokseumawe
Stuðningur við eftirlifendur
Verðlaunamyndir Þorkels

Samstarfsverkefni um sálrænan stuðning á Srí Lanka

elin_jonasdottir.jpg
Elín Jónasdóttir sálfræðingur ásamt börnum í Trincomalee. Sálfræðingarnir veittu meðal annars börnum stuðning til að ná sér eftir andleg áföll í kjölfar flóðbylgjunnar.

Í kjölfar flóðbylgjunnar um jólin 2004 tók Rauði kross Íslands þátt í samstarfsverkefni með Danska Rauða krossinum um sálrænan stuðning og áfallahjálp í Trincomalee á austurströnd Srí Lanka. Í því héraði ollu hamfarirnar miklum hörmungum og að minnsta kosti 1100 fórust og 30 þúsund fjölskyldur lentu á vergangi. Alls létust um það bil 31.000 manns á Srí Lanka vegna flóðbylgjunnar og 21.000 slösuðust. 500.000 manns misstu heimili sín og ekkert er vitað um afdrif hér um bil 5.000 einstaklinga.

Tveir íslenskir sendifulltrúar unnu að verkefninu
Verkefnið um sálrænan stuðning í Trincomalee var unnið í samvinnu Rauða kross Íslands, danska Rauða krossins við Rauða krossinn á Srí Lanka og naut styrkja frá mannúðarstofnun Evrópubandalagsins (ECHO). Tveir íslenskir sendifulltrúar tóku þátt í þessu tiltekna verkefni en Rauði kross Íslands sendi marga aðra hjálparstarfsmenn til Srí Lanka vegna ýmissa verkefna á eyjunni.

Þess má geta að Margrét Norðdahl myndlistarmaður kom að verkefninu um sálrænan stuðning í Tricomalee. Þar hjálpaði hún börnum, unglingum og konum á Srí Lanka að tjá tilfinningar sínar með myndlist og teikningum. Verkin voru sett upp á sýningu í höfuðborg landsins og síðan gefin út á vegum Alþjóðasambands Rauða krossins, Rauða krossins á Srí Lanka og danska Rauða krossins sem dagatal ársins 2006.

Þekkingin verður eftir meðal heimamanna
Mikill árangur náðist hvað varðar félagslegan stuðning við fórnarlömb hamfaranna. Mikilvægasta hlutverk verkefnisins var að veita börnunum stuðning til að ná sér eftir andleg áföll en mörg þeirra misstu nána ættingja og urðu fyrir skelfilegri reynslu af ýmsu tagi. Fullorðin fórnarlömb flóðbylgjunnar fengu ýmsa aðstöðu og stuðning, meðal annars aðgang að útvarpi, dagblöðum og tímaritum. Mikill fjöldi fólks fékk aðstoð við að fóta sig í lífinu á ný eftir ástvinamissi, eignatjón og önnur skelfileg áföll.

Hluti af verkefninu fólst einnig í þjálfun sjálfboðaliða Rauða krossins á Srí Lanka til að veita áfallahjálp og sálfélagslegan stuðning. Margir þeirra fengu hjól til að geta sinnt hjálparstarfi eftir að hafa tapað farartækjum sínum í flóðbylgjunni. Þessir sjálfboðaliðar úr röðum heimamanna fóru síðan um búðirnar og veittu fórnarlömbum aðstoð.

„Rauði krossinn leggur áherslu á að þjálfa heimamenn til að þekkingin verði eftir þar sem hennar er þörf, þegar við förum. Við þjálfuðum frábært fólk á aldrinum 19-29 ára. Margt af þessu fólki átti sjálft um sárt að binda en vildi þó fyrst og fremst fá tækifæri til að hjálpa öðrum,“ sagði Elín Jónasdóttir sálfræðingur. Hún stjórnaði verkefninu frá janúar til júlí 2005 og var seinna ráðgjafi danska Rauða krossins um áframhald verkefnisins. Annar íslenskur sendifulltrúi, Kolbrún Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur og kennari tók við stjórn verkefnisins þegar  Elín lauk störfum.

Sálrænn stuðningur í einni af hverjum þremur búðum í Trincomalee

„Í upphafi sinntum við fyrst og fremst fórnarlömbum flóðbylgjunnar. Síðari hluta ársins víkkuðum við markhóp okkar og hjálpuðum miklum fjölda fólks sem hafði þurft að þola langvarandi fátækt og afleiðingar stríðsátaka,“ segir Elín. „Verkefnið náði alls til 18 búða en 56 búðir voru í Trincomalee héraði eftir flóðin. Rauða kross deildin héraðinu var fyrst til að bregðast við afleiðingum hamfaranna en það tók stjórnvöld fimm til sex daga að koma hjálp á staðinn. Við vorum mjög stolt af Rauða kross deildinni í Trincomalee.“