Flóðbylgjan fimm árum síðar
Fimm árum síðar
Fréttir
Sendifulltrúar í Indónesíu
Sendifulltrúar á Sri Lanka
Raddir sendifulltrúa - myndband
Sálrænn stuðningur Srí Lanka
Lahewa
Lhokseumawe
Stuðningur við eftirlifendur
Verðlaunamyndir Þorkels

Starf Rauða krossins vegna flóðanna í Asíu

Flóð og rigningar sem áttu sér stað í byrjun júlí 2007 ullu milljónum manna tjóni í mörgum löndum, meðal annars í Bangladesh, Kína, Kólumbíu, Nepal, Pakistan, Indónesíu, Súdan og á Indlandi. Víða var um að ræða mestu rigningar í marga áratugi, jafnvel mannsaldra. Sjálfboðaliðar og starfsmenn frá landsfélögum Rauða krossins og Rauða hálfmánans veittu fórnarlömbum flóðanna aðstoð með því að útvega þeim húsaskjól, bjóða heilbrigðisþjónustu og dreifa hjálpargögnum. Alþjóða Rauði krossinn hrinti þegar af stað miklum aðgerðum á hamfarasvæðunum. 

Hjálparstarf vegna flóða í Kína, Bangladesh, Nepal, Pakistan og á Indlandi
Í Kína urðu flóðin um það bil 700 manns að bana en alls urðu rúmlega 200 milljónir manna fyrir barðinu á óvenjulega miklum rigningum. Líkt og svo oft þegar náttúruhamfarir eiga sér stað er það fátækt fólk sem verður fyrir mestu tjóni og fimm milljónir manna þurftu að yfirgefa heimili sín vegna þess að ár flæddu yfir bakka sína.

Átta milljónir manna urðu fyrir tjóni af völdum monsún-rigninga í Bangladesh og helmingur landsins fór undir vatn, þar á meðal stór hluti akurlendis. Óttast var að hættulegir sjúkdómar kynnu að brjótast út vegna skorts á hreinu drykkjarvatni. Alþjóða Rauði krossinn dreifði hjálpargögnum til 18.000 fjölskyldna.

Í Nepal urðu um 300.000 manns  fyrir barðinu á flóðum en sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða krossins í Nepal sáu um dreifingu matvæla til 62.000 bágstaddra í landinu. Alþjóða Rauði krossinn hafði í byrjun ágúst veitt jafnvirði rúmlega 13 milljóna íslenskra króna til hjálparstarfs í Nepal.

Alþjóða Rauði krossinn gaf út neyðarbeiðni vegna hjálparstarfsins í Pakistan fyrir um rúmlega einn milljarð íslenskra króna til að hægt væri að veita rúmlega 50.000 fjölskyldum aðstoð út árið 2007. Einnig dreifði pakistanski Rauði hálfmáninn rúmlega 13.000 matarpökkum til fjölskyldna sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna og 14.000 manns höfðu fengið læknisaðstoð frá hjúkrunarteymum landsfélagsins í byrjun ágúst.

Á Indlandi urðu að minnsta kosti 14 milljónir manna fyrir tjóni eða þurftu að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna. Í Bihar þar sem þau hafa verið verst er áætlað að allt að 70.000 heimili hafi eyðilagst í vatnselgnum.

Hjálparstarf vegna flóða í öðrum heimshlutum
Flóð ullu tjóni í enn fleiri löndum og heimsálfum sumarið 2007, meðal annars í Súdan þar sem rúmlega 200.000 manns þurftu að yfirgefa heimili sín. Í Indónesíu urðu aurskriður og flóð tugum manna að bana og eyðilögðu 600 heimili. Miklar hamfarir af völdum rigninga áttu sér einnig stað í Rússlandi, Burkina Faso, Gambíu og á Bretlandi. Á öllum þessum hamfarasvæðum tók hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans virkan þátt í björgunar- og hjálparstarfi.