Styrktarfélagar Rauða kross Íslands hafa um árabil fjármagnað ákaflega mikilvægt hjálparstarf á erlendri grund. Þetta er um fimm þúsund manna hópur, sem greiðir ákveðna upphæð til eins verkefnis í senn.
Frá 2009 styðja styrktarfélagar hjálparstarf Rauða krossins í tveimur sveitahéruðum í Malaví, þar sem alnæmisfaraldurinn hefur lagt þungar byrðar á almenning, meðal annars á börn sem hafa misst foreldra sína. Sjá nánar hér.
Hjálparstarf sem unnið hefur verið fyrir framlög styrktarfélaga
Á árinu 1994 var féð notað til að byggja upp heilsugæslu í Palestínu, fyrir þá sem ekki hafa efni á opinberri heilbrigðisþjónustu. Árið 1995 var munaðarlausum börnum frá stríðshrjáðum þorpum í Bosníu og Hersegóvínu gert kleift að sækja sumarbúðir við Adríahaf og gleyma þannig um stund hörmungum stríðsins.
Á árinu 1996 voru aldraðir íbúar ríkja gömlu Júgóslavíu aðstoðaðir yfir köldustu vetrarmánuðina. Vetrarhörkur voru mönnum einnig ofarlega í huga þegar fé styrktarmanna var notað til að kaupa góða kuldaskó fyrir 20.000 börn í Kasakstan, enda komust mörg þeirra ekki í skóla vegna skóleysis.
Styrktarfélagar brugðust frábærlega við árið 1998 þegar sent var út neyðarkall vegna fórnarlamba jarðsprengna í Írak og Bosníu og framlögin voru hærri en áður voru dæmi um. Á árinu 1999 fóru framlög styrktarfélaga til heilsugæsluverkefnis í Mósambík í samvinnu við mósambíska Rauða krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
Á árunum 2000, 2001 og 2002 fóru framlög styrktarfélaga öll til baráttunnar gegn alnæmi, hinum óhugnanlega sjúkdómi sem er að leggja heilu héruðin í sunnanverðri Afríku nánast í eyði. Hér á vefnum má fá upplýsingar um hættuna sem álfunni er búin af alnæmi, aðstæður barna sem hafa misst foreldra sína í helgreipar alnæmis, starf Rauða kross félaga í Afríku að heilbrigðismálum og verkefni sem Rauði kross Íslands styður í sunnanverðri Afríku. Á árinu 2003 voru hirðingjar í Mongólíu aðstoðaðir í kjölfar mikilla harðinda sem komu illa niður á bústofninum og árin 2004 og 2005 fór fjármagn styrktarfélaga í að hjálpa börnum á stríðshrjáðum svæðum.
Árin 2006 og 2007 snérist verkefnið um að aðstoða börn sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi í Malaví, Mósamík og Suður Afríku.
Árið 2008 fóru fjárframlög styrktarfélaga í hjálparstarf sem snýr að því að sameina fjölskyldur á átakasvæðum.
Þú getur hjálpað
