Sem Mannvinur Rauða krossins styður þú langtímastarf í þágu einstaklinga sem búa við miklar þrengingar.
Í Malaví styður þú alnæmissmitaða til sjálfshjálpar og munaðarlaus börn til mennta og þroska.
Í Síerra Leone styður þú athvarf þar sem 150 ungmenni sem upplifðu hrylling borgarastyrjaldar læra að lesa og skrifa og stunda iðnnám af ýmsum toga.
Í Palestínu styður þú sálrænan stuðning við 6.600 börn, 10 - 12 ára, sem búa við stöðuga óvissu og spennu.
Í Hvíta-Rússlandi styður þú baráttuna gegn mansali og hjálpar Rauða krossinum að dreifa fatnaði til barna efnalítilla foreldra.
Mannvinir Rauða krossins gera okkur kleift að veita von þar sem engin er fyrir.
Áður styrktarfélagar
Mannvinir Rauða krossins, sem áður voru kallaðir styrktarfélagar, hafa um árabil stutt dyggilega við bakið á hjálparstarfi víða um heim. Um það getur þú lesið hér.
.jpg)