Hvað gerum við
Skyndihjálp
Neyðarvarnir
Neyðaraðstoð innanlands
Alþjóðleg neyðaraðstoð
Sálrænn stuðningur
Hjálparsíminn 1717
Konukot
Skaðaminnkun
Heimsóknavinir
Geðheilsa
Hælisleitendur og flóttamenn
Fataverkefni
Barna- og ungmennastarf
Sjúkrabílar
Alþjóðaverkefni
Leitarþjónusta
Fjölskyldumiðstöð
Innflytjendur
Ungt fólk til athafna
Gott hollt og ódýrt
Hvað er í boði

Von um betra líf

Hjálparstarf Rauða kross Íslands gefur árlega þúsundum barna og fullorðinna, í erfiðum aðstæðum, von um betra líf.

Styrkja starfið althjodastarfid.jpg

Barn sem missir foreldra sína í helgreipar alnæmis þarf oft bara örlitla hjálp til að fá tækifæri til að komast til manns. Ungmenni sem hefur þurft að þola ólýsanlegar skelfingar stríðs getur komið sér á strik með því að eiga kost á að læra einhverja iðn. Fjölskylda sem missir heimili sitt í náttúruhamförum  þarf skjól, mat og aðstoð til uppbyggingar.

Hjálp til sjálfshjálpar
Hjá Rauða krossinum felst allt okkar starf í því að styðja heimamenn til að hjálpa á heimavelli. Félög Rauða krossins eða Rauða hálfmánans eru til í 187 löndum, og hvert þessara félaga er með deildir sem byggja á starfi sjálfboðaliða í grasrótinni.

Langflestir skjólstæðingar okkar eru börn og  ungmenni í fátækustu löndum Afríku.

Í Malaví styðjum við meðal annars munaðarlaus börn til framfærslu og mennta. Börnin eru ekki tekin úr umhverfi sínu heldur er þeim gefinn kostur á að alast upp í þorpinu sínu. Máltíðin sem þau fá hjá Rauða krossinum er eina máltíð dagsins hjá sumum þeirra.

Í Sierra Leone styðjum við ungmenni til mennta eftir þátttöku í borgarastyrjöldinni sem var í landinu. Strákarnir voru margir barnahermenn og stúlkurnar teknar sem kynlífsambáttir. Eitt ár í endurmenntunarstöðvum Rauða krossins er það tækifæri sem þau fá í lífinu.

Í Palestínu sýna rannsóknir að börn á aldrinum 10 – 12 ára sem fá sálrænan stuðning, sem Rauði kross Íslands styður, eru bæði jákvæðari, glaðværari og reiðubúnari að treysta öðrum heldur en þau voru áður.

Í Kákasusfjöllum styðjum við uppbyggingu neyðarvarna, þannig að heimamenn geti brugðist hratt og vel við náttúruhamförum.

Í Hvíta-Rússlandi fræðum við ungt fólk um hættur mansals og aðstoðum fórnarlömb mansals við heimkomuna, sem getur reynst mörgum erfið. 

Þegar á reynir
Þegar neyðarástand skapast fer Rauði krossinn af stað. Líkja má Rauða kross hreyfingunni við alþjóðlegt tryggingarkerfi, sem fer í gang þegar allt annað þrýtur. Íslendingar nutu aðstoðar Alþjóðahreyfingar Rauða krossins í Vestmannaeyjagosinu, sem brást veglega við þeirri hjálparþörf sem þá myndaðist.

Rauði kross Íslands leggur metnað sinn í að bregðast hratt við neyð, hvar sem er í heiminum. Sjálfboðaliðar í hverju landi hafa fengið þjálfun til að bregðast við skyndilegri neyð. Ef neyðin er svo stór að ekki dugar til það sem hægt er að útvega heima fyrir, þá kemur alþjóðahreyfingin til hjálpar.

Rúmlega 200 manns eru á svokallaðri Veraldarvakt Rauða kross Íslands. Sendifulltrúar eru reiðubúnir að stökkva til þegar kallið berst.

Samstarf til uppbyggingar
Rauði kross Íslands gegnir einkum þríþættu hlutverki í alþjóðlegu hjálparstarfi Rauða kross hreyfingarinnar: Að hjálpa:

  • þar sem þörfin er mest
  • þar sem fáir aðrir hjálpa
  • þar sem styrkleikar félagsins nýtast

Verkefnið er að sinna þessu hlutverki innan stefnuramma alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans og í samræmi við leiðarljós og stefnu Rauða kross Íslands. Mesta áherslu ber að leggja á verkefni þar sem hægt er að sameina þessi þrjú atriði.

Smæð félagsins hvetur það til að einbeita sér að fáum verkefnum í einu. Styrkur félagsins – sem er mikill þrátt fyrir smæðina – leggur því þær skyldur á herðar að vinna á breiðum verkefna- og málefnagrunni hreyfingarinnar. Áskorun félagsins er að sameina einbeitingu og fjölþætta ábyrgð í starfi sem leiðir til árangurs fyrir berskjaldaða skjólstæðinga þess.

Með starfi að afmörkuðum þáttum í stefnu Alþjóðasambands Rauða kross félaga til 2020 leggur Rauði kross Íslands sitt af mörkum til að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Stærstu alþjóðlegu langtímaverkefni félagsins miða að þúsaldarmarkmiði 6, að berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum. Önnur verkefni – svo sem aðstoð við stríðshrjáð börn, þolendur mansals og þá sem verða fyrir skyndilegum hamförum – miða einnig að því að ná þúsaldarmarkmiðunum, sem öll heimsbyggðin hefur sameinast um.

Á næstu árum mun Rauði kross Íslands í auknum mæli ná þessum markmiðum með beinni tvíhliða samvinnu við Rauða kross félög á verkefnasvæðum félagsins. Eftir því sem fram vindur mun sú þróun hafa áhrif á bæði verkefni og starfshætti við framkvæmd á alþjóðlegu hjálparstarfi félagsins.

Starfsaðferðir Rauða kross Íslands í alþjóðlegu hjálparstarfi

  • Rauði kross Íslands tekur þátt í mótun og vinnur samkvæmt stefnu og innan heildarskipulags alþjóðahreyfingar Rauða krossins.
  • Rauði kross Íslands leggur áherslu á gegnsæi, aðhald, jafnræði og heiðarleika í samskiptum við samstarfsfélög innan hreyfingarinnar.
  • Rauði kross Íslands tryggir eftirlit með fjármunum sem félaginu er treyst fyrir í alþjóðlegu hjálparstarfi.
  • Rauði kross Íslands byggir á styrkleikum í innanlandsstarfi við verkefnaval eins og kostur er.
  • Rauði kross Íslands lítur á eflingu sjálfboðastarfs samstarfslandsfélaga sem leið til að stuðla að sjálfbærni hjálparstarfs.
  • Rauði kross Íslands velur hæft starfsfólk með alþjóðlega reynslu og menntun til starfa á alþjóðasviði.
  • Rauði kross Íslands velur, eflir og þjálfar fólk á veraldarvakt, sem er reiðubúið að taka þátt í alþjóðlegu hjálparstarfi til lengri eða skemmri tíma.
  • Rauði kross Íslands ræktar sérstaklega samband og samstarf við önnur norræn Rauða kross félög og leggur sig fram um raunhæft samstarf við þau í alþjóðastarfinu.
  • Rauði kross Íslands vinnur náið með samstarfslandsfélögum að uppbyggingu þeirra og er reiðubúinn að styðja vel rökstudd og mikilvæg verkefni þeirra í skamman tíma þó að þau falli utan áherslusviðs Rauða kross Íslands.
  • Rauði kross Íslands gerir kröfur um árangursmiðaðar verkefnislýsingar sem sýna afrakstur og afurðir verkefnisins miðað við vel skilgreindar mælistikur. Eftirlit og úttektir eru hluti af öllum verkefnum.
  • Rauði kross Íslands lítur á sig sem málsvara skjólstæðinga sinna erlendis og leggur áherslu á að kynna aðstæður þeirra með virðingu fyrir einstaklingum að leiðarljósi.