Húsavíkurdeild Rauða krossins var stofnuð 7. ágúst 1958 þá skipuð 30 félögum. Þó að deildin hafi verið fámenn í upphafi má með sanni segja að mjór sé mikils vísir. Fyrsti formaður var Sigurjón Jóhannesson skólastjóri.
Deildin á 25% í húsnæði með Björgunarsveitinni Garðari og Slysavarnafélagi kvenna á Húsavík. Deildin hefur skrifstofu í húsinu en fundarsalur og eldhús eru sameign.
Starfssvæði Húsavíkurdeildar er Suður-Þingeyjarsýsla að undanskildum sveitarfélögunum við Eyjafjörð.
Auk hefðbundinna verkefna tengdum skyndihjálparfræðslu og neyðarvörnum er deildin með ört vaxandi starf heimsóknavina.