Lækur, athvarf fyrir fólk með geðraskanir
Dagskrá
Opnunartími
Hér erum við
Húsreglur
Starfsmenn
Saga Lækjar
Ársskýrslur
Samstarfsaðilar

Saga Lækjar

Lækur var opnaður 24. október 2003 að tilstuðlan Hafnarfjarðardeildar Rauða kross Íslands eftir að þarfagreining hafði verið gerð. Í upphafi var Lækur samstarfsverkefni Hafnarfjarðardeildar Rauða krossins, Hafnarfjarðarbæjar og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Reykjanesi. Eftir að Svæðisskrifstofa í málefnum fatlaðra var lögð niður og málaflokkurinn var fluttur frá ríkinu til sveitafélaganna eru það Rauði krossinn og Hafnarfjarðarbær sem standa rekstri Lækjar.

Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði fólks sem átt hefur við sálræna eða geðræna erfiðleika að etja. Þeir sem sækja Læk gera það á eigin forsendum, koma og fara að eigin vild.

Í starfi Lækjar er stuðst við hugmyndafræði ,,valdeflingar" (e. empowerment). Valdefling stuðlar að betri líðan einstaklinga með geðræna sjúkdóma og miðar að því að efla sjálfstæði þeirra. Til dæmis að mynda sér skoðanir, taka ákvarðanir og velja sér lífsstíl sjálfir. Einnig er stuðst við rannsóknir sem byggðar hafa verið á viðtölum við fólk sem náð hefur bata, en fyrst og fremst hefur verið lögð áhersla á virðingu í öllum samskiptum.

Frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á listir, en listir hafa góð áhrif á fólk og dregur úr vanlíðan. Haldin hafa verið mörg námskeið í myndlist og haldnar myndlistasýningar á vegum Listar án landamæra á alþjóða geðheilbrigðisdaginn 10. október. Farið er reglulega á myndlistarsýningar, kaffihús og tónleika.

Dagskráin hefur ávallt verið fjölbreytt,  hún felur í sér hreyfingu, sjálfstyrkingu, listsköpun, skákkennslu, stuðning til reykleysis o.fl. sem hver og einn getur tekið þátt í að eigin vild.

Ýmislegt annað er gert fyrir utan hefðbundna dagskrá eins og að fara í ferðalög og leikhús.

Lækur hefur frá upphafi verið vel sóttur og  margir nýtt sér að koma í Læk í lengri eða skemmri tíma.