Rauði kross Íslands hefur komið að málefnum hælisleitenda á Íslandi frá 1987 með ýmsum hætti. Meðal annars sá hreyfingin um umönnun hælisleitenda til loka árs 2003. Nú starfar Rauði krossinn að málefnum hælisleitenda í samræmi við samkomulag við dóms– og mannréttindamálaráðuneytið frá árinu 2004. Rauði kross Íslands hefur heimild til að fylgjast með meðferð mála þeirra sem sækja um hæli hér á landi sem og aðbúnaði þeirra, meðal annars með því að eiga viðræður í trúnaði við hælisleitendur. Rauði krossinn sinnir málsvarahlutverki fyrir hælisleitendur og útvegar lögmannsaðstoð þyki ástæða til.