Grindavíkurdeild
Stjórn
Föt sem framlag
Heimsóknaþjónusta
Neyðarvarnir
Námskeið
Ýmis önnur verkefni
Fréttabréf
Myndir úr starfinu

Neyðarvarnir

Grindavíkurdeild sinnir neyðarvörnum samkvæmt samningi Rauða kross Íslands við Almannavarnir ríkisins. Þegar þess gerist þörf opna sjálfboðaliðar neyðarvarna fjöldahjálparstöð í grunnskólum Grindavíkur og sinna þar ýmsum störfum og aðhlynningu. Deildin hefur á að skipa 14 fjöldahjálparstjórum og einstaklingum sem eru tilbúnir að bregðast við þegar á þarf að halda. Neyðarvarnanefnd hefur umsjón með skipulagi neyðarvarna á vegum deildarinnar.

Neyðarvarnaáætlunin er uppfærð árlega en þar eru skráðir fjöldahjálparstjórar, starfsfólk skóla og heilsugæslu, fjöldi túlka auk liðsauka og aðila sem hafa með aðföng í bæjarfélaginu að gera.

Vegna neyðarvarna hefur Grindavíkurdeild komið sér upp lager af teppum, koddum og dýnum auk þess sem fjárfest var í þremur tetra-talstöðvum og flíspeysum merktum Rauða krossinum fyrir sjálfboðaliða deildarinnar.

Ef til neyðarástands kemur vegna náttúruhamfara, slysa eða af öðrum ástæðum eru sjálfboðaliðar á vegum Grindavíkurdeildar tilbúnir til aðstoðar.

Fjöldahjálparstöð er staðsett í grunnskóla Grindavíkur að Ásabraut 2 og Suðurhópi 2.

Fulltúrar neyðarvarnarnefndar:
Magnús Már Jakobsson, formaður, fjöldahjálparstjóri og skyndihjálparleiðbeinandi – 6608809 - magnusmar@bluelagoon.is
Brynja Guðmundsdóttir, fjöldahjálparstjóri – 8979035 - brynjag69@googlemail.com
Guðrún Kristín Einarsdóttir – 8409350 - tigra6@visir.is
Gunnar R. Jónsson – 8206412 -  grjonsson@simnet.is
Hjördís Rósa Halldórsdóttir, fjöldahjálparstjóri og skyndihjálparleiðbeinandi – 6617041 – rosy@internet.is