Handavinnuhópur Grindavíkurdeildar sem samanstendur af sjálfboðaliðum sinnir ýmis konar handavinnu eins og að sauma ungbarnaföt, ungbarnahandklæði, teppi og sængurver fyrir ungabörn auk þess að prjóna húfur, vettlinga, sokka og fleira.
Einnig geta einstaklingar sem ekki treysta sér til að koma í Rauðakrosshúsið prjónað heima. Hópurinn sér um að koma garni til viðkomandi og sækja prjónlesið.
Handavinnuhópurinn sinnir einnig því verkefni að nýta föt til að aðstoða aðra, meðal annars með pökkun fatapakka sem sendir eru erlendis til barna og fjölskyldna í neyð.
Á handavinnudögum safnast sjálfboðaliðarnir saman í Rauðakrosshúsinu að Hafnargötu 13 hér í Grindavík og eiga saman skemmtilega stund við að sinna mannúðarstarfi.
Hópurinn hittist annan hvern þriðjudag kl. 13-16 yfir vetrartímann en hópstjóri er Erla Delberts og geta áhugasamir haft samband við þær Ingibjörgu Reynisdóttur, s. 8641332, til frekari upplýsinga.