Einstaklingar og hópar vinna ákaflega merkilegt hjálparstarf með því að vinna ungbarnaföt sem send eru til alþjóðlegrar neyðaraðstoðar. Fötin eru meðal annars gerð úr afgöngum og góðum notuðum efnum.
Í þróunarlöndum og á svæðum þar sem neyðarástand ríkir er víðast mikill skortur á barnafötum. Í fatasöfnunum berst minnst af barnafötum. Handavinnuverkefnið Föt sem framlag miðar að því að draga úr þessum skorti. Þörfin er brýn og allir geta lagt sitt af mörkum til að aðstoða þá sem þurfa á fötum að halda. Frá janúar til september 2009 voru sendir út 2.300 pakkar af ungbarnafatnaði.
Rauði kross Íslands lætur í té uppskriftir og snið af fötunum. Öll vinna við verkefnið er sjálfboðavinna. Rauði kross Íslands kemur fötunum á áfangastað.
Flutningafyrirtækin Eimskip, Landflutningar og Flytjandi veita fataverkefninu ómetanlega aðstoð.
Fatasöfnun Rauða krossins er staðsett að Skútuvogi 1, Reykjavík, sími 587 0900, netfang fataflokkun@redcross.is