Garðabæjardeild
Stjórn og starfsfólk
Heimsóknavinir
Föt sem framlag
Ævintýraferðir
Samstarf við FG
Fatasöfnun og Rauðakrossbúðirnar
Neyðarvarnir
Fréttir
Myndir úr starfi
Ársskýrslur
Hugmyndabanki

Samstarf við Fjölbrautarskólann í Garðabæ

Haustið 2009 hóf deildin samstarf við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Þar er nemendum er boðið upp á að velja sjálfboðastarf sem hluta af umsjónaráfanga skólans. Nemendum er því í sjálfsvald sett hvort þeir kjósi að vinna sjálfboðastarf sem nemur 12 klukkustundum yfir önnina og þá t.d. við verkefni hjá Garðabæjardeild og fá þar með eina einingu fyrir. Umsjónaráfanginn er skylda öll menntaskólaárin.

Nemendum stendur til boða að taka þátt í verkefnum deildarinnar s.s. Heimsóknavinir á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð; ævintýraferðir þar sem nemendur styðja við fötluð ungmenni til þess að gera þeim kleift að fara í t.d. hellaferðir, fjallgöngu, klettaklifur, flúðasiglingar; þátttaka í „Föt sem framlag“, hinum öfluga prjónahópi deildarinnar; afgreiðslustörf í fataverslun Garðabæjardeildar Rauða krossins á Garðatorgi. Nemar á tísku- og listnámsbraut skólans geta einnig búið til föt – endurhannað úr notuðum fötum og boðið til sölu í búðinni. Allir nemendur sækja grunnnámskeið fyrir sjálfboðaliða og fá fræðslu um hugsjónir og störf Rauða kross hreyfingarinnar.

Markmið verkefnisins er að:
efla enn frekar samstarfið við Fjölbrautaskólann í Garðabæ;
fjölga sjálfboðaliðum meðal nemenda skólans og auka þannig þátttöku ungs fólks í starfi deildarinnar;
auka þekkingu og skilning á grundvallarmarkmiðum, gildum og störfum Rauða krossinsa, veita stuðning og viðurkenningu.