Líkt og aðrað deildir Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu safnar Garðabæjardeild notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Á höfuðborgarsvæðinu er Rauði krossinn í samstarfi við Sorpu um söfnun á fatnaði. Á öllum endurvinnslustöðum Sorpu er að finna söfnunrgáma Fatasöfnunar, einnig er gámur við Rauða kross búðina á Garðatorgi (Hrísmóum 4). Þeir eru hvítir og vandlega merktir Rauða krossinum.
Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:
- hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins
- hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi
- hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis
- hann er flokkaður og seldur í Rauða kross búðunum að Laugavegi 12, Laugavegi 116 og í Mjódd í Reykjavík, Strandgötu 24 Hafnarfirði og á Garðatorgi (Hrísmóum 4) í Garðabæ.
Öll vefnaðavara kemur að notum, líka það sem er slitið eða illa farið. Það sem ekki nýtist sem fatnaður fer í endurvinnslu og skilar mikilvækum tekjum til Rauða krossins í leiðinn. Skór, gluggatjöld, rúmföt og handklæði eru vel þegin.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta fengið upplýsingar um opnunartíma og staðsetningu endurvinnslustöðva á heimasíðu Sorpu. Vinsamlegast látið fötin í plastpoka og lokið vel fyrir. Pokarnir eru settir í vel merkta hvíta gáma sem vel er hugsað um. Sjálfboðaliðar flokka fatnaðinn í Fatasöfnun Rauða krossins að Skútuvogi 1, Reykjavík. Sjálfboðaliðar annast einnig afgreiðslu í verlsunum Rauðakrossins.
Íbúar á landsbyggðinni geta haft samband við sína deild og spurst fyrir um söfnunarstað.
Opnunartími verslana
Laugavegi 12 Reykjavík og Laugavegi 116 Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18
Mjódd Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18
Strandgötu 24 Hafnarfirði
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 12-18, lokað laugardaga
Garðatorgi (Hrísmóum 4) í Garðabæ
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 12-18, laugarðaga 12-15
Skilríki Allir þurfa að framvísa skilríkjum til að gera grein fyrir sér.
Skráning Skráð verður nafn og kennitala.
Fatnaður Hver einstaklingur getur fengið allt að tvo poka af fatnaði hverju sinni. Fatasöfnunin lætur í té pokana.
Hve oft Sérhver getur fengið úthlutað fjórum sinnum á ári. Að minnsta kosti tveir mánuðir þurfa að líða á milli úthlutana.
Komi upp sérstök tilvik sem krefjast úrlausnar umfram áðurtalda aðstoð skal leita til Rauða kross deildar í viðkomandi sveitarfélagi.
Nánari upplýsingar í Fatasöfnun Rauða krossins að Skútuvogi 1 Reykjavík, sími 587 0900, fataflokkun@redcross.is eða á landsskrifstofu Rauða krossins sími 570 4000.
Dæmi um verkefni sem fjármögnuð eru úr hjálparsjóði:
Hjálp til sjálfshjálpar
Hjá Rauða krossinum felst allt okkar starf í því að styðja heimamenn til að hjálpa á heimavelli. Félög Rauða krossins eða Rauða hálfmánans eru til í 187 löndum, og hvert þessara félaga er með deildir sem byggja á starfi sjálfboðaliða í grasrótinni.
Langflestir skjólstæðingar okkar eru börn og ungmenni í fátækustu löndum Afríku. Í Malaví styðjum við meðal annars munaðarlaus börn til framfærslu og mennta. Börnin eru ekki tekin úr umhverfi sínu heldur er þeim gefinn kostur á að alast upp í þorpinu sínu. Máltíðin sem þau fá hjá Rauða krossinum er eina máltíð dagsins hjá sumum þeirra.
Í Mósambík njóta fátækir þorpsbúar í sunnanverðu landinu heilsugæslu sem þeir hefðu ekki haft nema vegna aðstoðarinnar frá Íslandi. Yfirsetukonur í hverju þorpi huga að heilbrigði þorpsbúa, aðstoða konur við barnsburð og vara við því að óvarið kynlíf geti verið lífshættulegt vegna alnæmisveirunnar.
Í Sierra Leone styðjum við ungmenni til mennta eftir þátttöku í borgarastyrjöldinni sem var í landinu. Strákarnir voru margir barnahermenn og stúlkurnar teknar sem kynlífsambáttir. Eitt ár í endurmenntunarstöðvum Rauða krossins eru það tækifæri sem þau fá í lífinu.
Í Palestínu sýna rannsóknir að börn á aldrinum 10 – 12 ára sem fá sálrænan stuðning, sem Rauði kross Íslands styður, eru bæði jákvæðari, glaðværari og reiðubúnari að treysta öðrum heldur en þau voru áður
