![]() |
| Cut Resmi heima hjá sér í Banda Aceh. |
Þegar flóðbylgjan skall á ströndinni var Cut Resmi að gróðursetja blóm í litla garðinum sínum í Banda Aceh. Vatnsflaumurinn tók annað af börnum hennar og lagði heimili fjölskyldunnar í rúst. Eftir sátu Cut og eiginmaður hennar allslaus og heltekin af sorg.
Rúmlega fjögur ár eru nú liðin síðan flóðbylgjan í Indlandshafi skall á. Snerti hún líf milljóna manna sem misstu eigur sína og þúsundir létust.
„Ég gafst upp og hélt að ég hefði misst heimili mitt fyrir fullt og allt,“ segir Cut. „Það eina sem gaf mér styrk var sonur minn, því að hann var ennþá mjög ungur og þurfti á miklum stuðningi að halda.“
Cut og fjölskylda hennar settust að í bröggum sem höfðu verið byggðir fyrir þá sem misstu heimili sín. Á þessum sama stað hóf Rauði hálfmáninn í Indónesíu ásamt ameríska Rauða krossinum að veita fólkinu sálrænan stuðning.
Sálrænn stuðningur
Sálrænn stuðningur Rauða krossins og Rauða hálfmánans auðveldaði fólkinu að takast á við erfiðleikana og sigrast á harmleiknum. Aðstoðin beindist fyrst og fremst að fólki sem var í svipaðri stöðu og Cut, fólki sem hafði tapað öllu sem það átti og hafði enga vini eða ættingja sem gátu hjálpað. Á þeim sex mánuðum sem í hönd fóru veittu Rauði hálfmáninn í Indónesíu og ameríski Rauði krossinn meira en 30.000 manns sálrænan stuðning. Ekki leið á löngu uns Cut gerðist sjálfboðaliði og tók að sér að skipuleggja sálrænan stuðning meðal fólksins í bröggunum.
Að ná sér eftir áfallið
„Margir þurftu virkilega á sálrænum stuðningi að halda,“ segir hún. „Það hjálpaði þeim að ná sér eftir áfallið, jafnvel þó að framtíðin væri óviss og þeir væru enn að syrgja ástvini.“
Fjórum árum síðar er Cut og fjölskylda hennar búin að setja upp litla fatabúð og eignast nýtt hús. Þegar ameríski Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn í Indónesíu settu upp skyndihjálparverkefni í þorpinu ákvað hún þegar í stað að taka þátt og hjálpa öðrum að koma undir sig fótunum að nýju.
Verkefnið felst í því að veita fórnarlömbum flóðbylgjunnar fræðslu um skyndihjálp og heilsu. Mikil þörf er fyrir þetta verkefni því að hamfarirnar eyðilögðu meira en 400 heilsugæslustöðvar og sjúkrahús. Nærri því þriðjungur af öllu heilbrigðisstarfsfólki í Aceh lést í flóðbylgjunni.
Meðferð við algengum sjúkdómum
Þó að heilbrigðisþjónusta hafi verið endurbætt mikið hefur fólk í dreifbýli oft takmarkaðan aðgang að henni. Sjúkdómar á borð við dengue og malaríu eru enn algengir og verða mörgum að bana.
Cut veitir vinum sínum og nágrönnum fræðslu um sjúkdóma og hvernig eigi að forðast þá. Nokkra daga í hverri viku heimsækir hún aðra þorpsbúa á heimilum þeirra og ræðir við þá um algeng heilbrigðisvandamál. Hluti af starfi Rauða krossins á svæðinu felst í því að þjálfa sjálfboðaliða í 140 þorpum til að veita fræðslu af þessu tagi.
„Aðrar mæður spyrja mig oft um næringu barna og hvernig þær eigi að greina hættulega sjúkdóma á borð við dengue,“ segir Cut. „Ég er ánægð að geta veitt fólki þessa mikilvægu fræðslu, því að oft er það einföld vitneskja um algenga sjúkdóma sem skilur milli lífs og dauða.“
| Deila þessari frétt: |
|
|