Hvað eru eðlileg viðbrögð við álagi?
Alvarlegur atburður eins og sú efnahagskreppa sem nú gengur yfir Ísland getur haft áhrif á unglinga og ungt fólk alveg eins og aðra íbúa landsins. Það er hins vegar einstaklingsbundið hversu mikil eða lítil áhrif slíkur atburður hefur. Hann getur valdið tilfinningalegu uppnámi hjá fólki sem einkennist af ótta, hræðslu, reiði og/eða hjálparleysi. Rétt er að benda á að kreppa er alltaf tímabundið ástand þannig að hún gengur yfir um síðir.
Ef afleiðingar kreppunnar hafa veruleg áhrif á líf unglingsins, til dæmis að foreldri eða foreldrar missa vinnunna er líklegt að áhrifin verði meiri. Slík áhrif geta valdið uppnámi og vanlíðan en það er afar mikilvægt að muna að slík viðbrögð eru eðlileg vegna mjög óeðlilegra aðstæðna. Ef þér líður illa í meira en 4 - 6 vikur og ástandið veldur þér miklum erfiðleikum skaltu leita ráða hjá einhverjum sem þú treystir vel. Viðbrögðin sem koma fram birtast í tilfinningum, hugsunum, líkamlegum vanda og hegðun eins og fram kemur hér að neðan:
Tilfinningar
Ótti, óróleiki og angist
Áhyggjur, hræðsla, dapurleiki og vonbrigði
Sektarkennd og reiði
Hugsanir
Erfiðleikar með einbeitingu og eftirtekt í námi eða vinnu
Ásæknar minningar og hugsanir um það sem hefur gerst
Trúa ekki því sem hefur gerst eða að það sé ekki eins slæmt og það er
Martraðir
Líkamleg vandamál
Höfuðverkur, magaverkur og aðrir verkir í líkama
Svefnerfiðleikar
Borða miklu meira eða miklu minna en áður
Hegðun
Orkuleysi og þreyta og stunda ekki tómstundir eða fara í skólann
Lenda í auknum vandræðum í skóla og heima fyrir
Framkvæma án þess að hugsa og gera hluti sem eru hættulegir
Fikta við áfengi og önnur vímuefni
Hvernig á að takast á við álagið?
Þrátt fyrir að viðbrögðin sem talin hafa verið upp hér að framan geti stundum verið yfirþyrmandi, er samt sem áður ýmislegt sem hægt er að gera sér til hjálpar.
- Haltu þig við daglegar venjur eins og skóla og tómstundir
- Hvíldu þig og borðaðu vel
- Vertu virk/ur í fjölskyldunni og hópi vina
- Talaðu við vini þína og fullorðið fólk sem þú treystir
- Ekki búast við of miklu af sjálfum þér eða öðrum of fljótt
- Notaðu tímann til að gera það sem þér finnst skemmtilegt
- Óskaðu eftir aðstoð þegar þú þarft á henni að halda
- Áttaðu þig á því að fólk upplifir álag á mismunandi vegu
Hvað með vini mína?
Það getur verið að vinir þínir glími við meiri vanda en þú og vilji tala um hann. Þessi vandi gæti verið sá sami og lýst hefur verið hér að ofan. Oftast vitum við hvernig við eigum að ráða fram úr þessum vanda. Það kemur þó fyrir vinir þínir segi þér frá hlutum sem þeir upplifa eða eru að hugsa um sem þú veist ekki hvernig þú átt að bregðast við. Frásögn þeirra getur gert þig hrædda/n og ruglaða/n og þú veist ekki hvað þú átt að gera. Þetta geta verið alvarlegar hugsanir eins og um að strjúka að heiman eða skaða sig með einhverjum hætti. Þegar um svo alvarlega hluti er að ræða er mikilvægt að þú leitir ráða hjá einhverjum fullorðnum sem þú þekkir og/eða fáir vin þinn til að gera það.
