Vestfirðir
Bolungarvikurdeild
Dýrafjarðardeild
Ísafjarðardeild
Súðavíkurdeild
Súgandafjarðardeild
Önundarfjarðardeild

Vestfirðir

Á norðanverðum Vestfjörðum eru starfandi sex deildir sem sinna neyðarvörnum, sjúkraflutningum og margvíslegum verkefnum sem lúta að því að byggja betra samfélag.

Hluti af því að byggja betra samfélag er að rjúfa félagslega einangrun einstaklinga sem geta ekki verið fullgildir þátttakendur í samfélaginu og notið þeirra lífsskilyrða og þæginda sem teljast eðlileg á hverjum tíma, hverjar svo sem ástæður þess kunna að vera.

Rauða kross deildirnar á Vestfjörðum leita eftir aðstoð sjálfboðaliða við ýmis verkefni. Í leit sinni að sjálfboðaliðum og bakhjörlum spyrja deildirnar eftirfarandi spurninga:

  • Viltu taka þátt í að byggja betra samfélag á Vestfjörðum?
  • Langar þig til að kynnast nýju fólki og leyfa því að kynnast þér?
  • Viltu læra eitthvað nýtt eða kenna öðrum það sem þú kannt?
  • Viltu gefa eitthvað af þér og þiggja eitthvað í staðinn?

Eftirtalin verkefni eru í gangi á svæðisvísu:

Vesturafl, Brunngötu 10 Ísafirði
Vesturafl er miðstöð og endurhæfing fyrir fólk með skert lífsgæði sem vegna veikinda eða aðstæðna getur ekki tekið virkan þátt í samfélaginu, í vinnu eða inni á heimili. Markmiðið er að skapa hvetjandi stuðningsúrræði og efla sjálfstraust og ábyrgð til félagslegrar þátttöku í vinnu, námi og úti í samfélaginu. Sjálfboðaliðar fá sérstaka þjálfun til að taka þátt í verkefninu.

Heimsóknavinir.
Heimsóknavinur er sjálfboðaliði sem heimsækir gestgjafa sinn að öllu jöfnu einu sinni í viku oftast klukkustund í senn eða eftir samkomulagi. Verkefnið hentar öllum sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á mannlegum samskiptum. Boðið er uppá hefðbundnar heimsóknir inn á einkaheimili en einnig heimsóknir á stofnanir. Sjálfboðaliðar sækja námskeið sem sérstaklega er ætlað heimsóknavinum.

Barna- og ungmennastarf
Markmiðið er að taka þátt í verkefnum sem miða að því að styðja, vinna með og virkja börn og ungmenni sem minna mega sín í samfélaginu. Sjálfboðaliðar fá sérstaka þjálfun og sækja ýmis grunnnámskeið.

Verkefnisstjóri:
Bryndís Friðgeirsdóttir
Suðurgata 12
400 Ísafjörður
Sími 456 3180
Farsími: 864 6754
Netfang: vestfirdir@redcross.is