Börn í stríði
Alþjóða Rauði krossinn
Rauði kross Íslands
Íslendingar á staðnum
Í faðm foreldra sinna
Börn sem stríðsmenn

Börn sem stríðsmenn

Barnahermenn eru rænd barnæskunni á versta hugsanlega hátt.
Barnahermenn eru rænd barnæskunni á versta hugsanlega hátt.

Barnahermenn eru rænd barnæskunni á versta hugsanlega hátt. 

Sum börn eru ekki bara fórnarlömb stríðs heldur beinir þátttakendur í stríði. Þau börn eru kannski mestu fórnarlömbin. Í mörgum tilvikum eru þau tekin frá foreldrum sínum, jafnvel á unga aldri, og alin upp til þess að berjast.

Talið er að um 300 þúsund börn undir 18 ára aldri séu virkir þátttakendur í átökum víða um heim. Fyrir mörg þeirra þá eru vígasveitir þeirra einu fjölskyldurnar sem þau þekkja. Ungir drengir eru þjálfaðir til þess að berjast og stunda njósnir og ungar stúlkur eru teknar í þrælavinnu eða kynlífsþjónustu fyrir hermenn. Þessi börn hafa verið rænd barnæskunni á versta hugsanlega hátt.

Það er ekki að ástæðulausu að foringjar skæruhópa vilja beita fyrir sig börnum. Þegar þau hafa verið slitin frá foreldrum sínum ganga þessir foringjar þeim oft í föðurstað. Þeir gefa þeim fíkniefni fyrir bardaga og hvetja til óhæfuverka. Vopnuð börn undir áhrifum vímuefna, sem eiga allt sitt undir sínum yfirmanni, hlýða skipunum efasemdalaust og berjast af fullkomnu samvisku- og óttaleysi. Þau eru hinir fullkomnu vígamenn.

Rauði krossinn vinnur að málefnum barnahermanna með þrennum hætti:

  • Með því að keppa að því að herjum sé bannað að alþjóðalögum að skrá börn undir 18 ára aldri í her
  • Með því að hjálpa börnum að komast aftur til fjölskyldna sinna og aðstoða barnahermenn sem lenda í fangelsi
  • Með því að aðstoða barnahermenn við þá endurhæfingu sem er nauðsynleg svo þeir geti aðlagast borgaralegu samfélagi á ný og orðið nýtir þjóðfélagsþegnar

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alþjóðaráðs Rauða krossins.