Börn í stríði
Alþjóða Rauði krossinn
Rauði kross Íslands
Íslendingar á staðnum
Í faðm foreldra sinna
Börn sem stríðsmenn

Hjálpum börnum í stríði

Rauði kross Íslands leggur áherslu á að bannað verði að alþjóðalögum að börn undir 18 ára aldri sinni herþjónustu. 

Þrátt fyrir smæð þjóðarinnar þá hefur Rauði kross Íslands getið sér gott orð á vettvangi alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Félagið reynir að einbeita sér að fáum verkefnum og býður gjarna fram bæði sendifulltrúa og fé. Þannig hefur Rauði kross Íslands lagt áherslu undanfarin ár á baráttuna gegn alnæmi í sunnanverðri Afríku.

Með fjáröflunum meðal almennings, auk hlutdeildar félagsins í tekjum Íslandsspila, safnaði félagið 50 milljónum króna til verkefna í Mósambík, Suður-Afríku og Malaví. Þessi verkefni hafa þegar náð til þúsunda manna með líknandi aðhlynningu, forvarnarstarfi og aðstoð við börn sem misst hafa foreldra sína í helgreipar alnæmisveirunnar. Þessi verkefni halda áfram.

Áhersla Rauða kross Íslands á aðstoð við börn á stríðssvæðum er rökrétt framhald af starfi félagsins undanfarin ár í tengslum við baráttuna fyrir því að bannað verði að alþjóðalögum að skrá börn undir 18 ára aldri í herþjónustu. Sú barátta hefur borið ríkulegan árangur en þótt lögin segi eitt þá er raunveruleikinn samt annar. Nú bera um 300.000 börn vopn á ýmsum átakasvæðum í heiminum. Þúsundir barna alast upp foreldralaus af því að þeirra nánustu hafa dáið eða horfið á vígaslóð. Vannæring sem fylgir átökum kemur harðast niður á börnum.

Söfnun fyrir verkefnum til aðstoðar börnum í stríði fer fram með eftirfarandi hætti: Styrktarfélagar, sem styðja alþjóðlegt hjálparstarf með reglubundnum hætti, styrkja á árinu 2004 verkefni tengd börnum í stríði. Þú getur gerst styrktaraðili með því að skrá þig hér.

  • Börn í stríði er góðgerðarmálefni Euro2004 knattspyrnunnar í Portúgal í júní og júlí 2004. Á sama tíma ætla mörg Rauða kross félög, þar á meðal Rauði kross Íslands, að safna fé til aðstoðar börnum í stríði. Þessi fyrirtæki styðja okkur.
  • Göngum til góðs landssöfnun Rauða kross Íslands fer fram 2. október verður tileinkuð börnum í stríði. Þú getur skráð þig í gönguna hér.