Þegar átakaeldur logar brennir hann líka saklaust fólk. Hvort sem foreldrar eru þátttakendur eða fórnarlömb stríðsins þá kemur ofbeldið alltaf verst við börnin. Í uppnámi átaka tvístrast fjölskyldur. Fátt er jafn hörmulegt fyrir foreldri en að verða viðskila við barn sitt.
Síðan skömmu eftir að Alþjóðaráð Rauða krossins var stofnað 1863 hefur það starfrækt leitarþjónustu, sem hefur það aðalhlutverk að sameina fólk sem hefur orðið viðskila í hita átaka. Rauði krossinn býður líka upp á skilaboðaþjónustu, sem gerir fórnarlömbum stríðs – bæði óbreyttum borgurum og stríðsföngum – kleift að senda bréf yfir víglínuna þar sem póstþjónusta liggur niðri.
Leitarþjónusta og skilaboðaþjónusta Rauða krossins mynda net sem nær um allan heim. Hér á landi getur fólk leitað til Rauða kross Íslands, sem kemur upplýsingum áfram annað hvort í gegnum Alþjóða Rauða krossinn eða viðkomandi landsfélag Rauða krossins eða Rauða hálfmánans.
Fyrir sendifulltrúa Rauða krossins á átakasvæði jafnast ekkert á við það þegar barn hittir foreldri, stundum eftir margra ára aðskilnað.
Sjö ára borgarastyrjöld í Kongó hefur valdið miklum hörmungum en nú er búið að skrifa undir friðarsamninga og í kjölfarið er auðveldara að ná til fórnarlamba átakanna á svæðum sem hingað til voru lokuð.
Eitt af verkefnum Rauða krossins í Kongó er að koma börnum til foreldra sinna eða ættmenna, eftir að þau hafa orðið viðskila við þau í upplausn átakanna.
