Börn í stríði
Alþjóða Rauði krossinn
Rauði kross Íslands
Íslendingar á staðnum
Í faðm foreldra sinna
Börn sem stríðsmenn

Alþjóða Rauði krossinn

Alþjóðaráð Rauða krossins er með 11.000 starfsmenn um allan heim sem sinna vernd og aðstoð við stríðshrjáða.
Alþjóðaráð Rauða krossins er með 11.000 starfsmenn um allan heim sem sinna vernd og aðstoð við stríðshrjáða.

Skipta má aðstoð Alþjóða Rauða krossins við börn á stríðssvæðum í tvennt: Vernd og aðstoð.

Vernd
Hugmyndin um vernd barna á stríðssvæðum felur í sér allt það sem hægt er að gera til að tryggja virðingu fyrir réttindum barna, bæði á alþjóðavettvangi – í lögum sem um það fjalla – og á vettvangi, þar sem ætlast er til að lögunum sé framfylgt.

Alþjóðaráð Rauða krossins hefur það hlutverk að alþjóðalögum að vinna að því að stríðandi fylkingar láti ekki erjur sínar bitna á óbreyttum borgurum. Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans hefur beitt sér sérstaklega fyrir því að réttindi barna á ófriðarsvæðum séu sem mest.

Rauði kross Íslands tók forystu innan hreyfingarinnar fyrir því að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðarinnar bannaði herjum að beita börnum undir 18 ára aldri í stríði. Það mál er að miklu leyti í höfn, þó að enn vanti upp á að öll ríki hafi samþykkt ákvæðið.

Aðstoð
Aðstoð Rauða krossins við börn á stríðssvæðum er annars vegar sérstök aðstoð við börn og hins vegar almenn aðstoð við óbreytta borgara. Á árinu 2002 – sem var á engan hátt óvenjulegt ár – hafði Rauði krossinn milligöngu um að 1.600 börn fundu foreldra sína eða ættingja eftir að hafa orðið viðskila við þá á átakasvæðum. Á þessu sama ári heimsóttu sendifulltrúar 3.388 börn í fangelsi á átakasvæðum og fengu því framgengt að 1.113 börn voru leyst úr haldi.

Í mörgum tilvikum tengist aðstoð við börn almennri aðstoð við foreldra, og þá sérstaklega mæður. Áhersla Rauða krossins er á líf og heilsu fórnarlamba stríðs, að draga úr þjáningum þeirra og haga aðstoðinni þannig að fólk geti átt von um betri framtíð. Stundum felst aðstoðin einfaldlega í því að hjálpa fólki að komast lífs af.

Alþjóðaráð Rauða krossins er með 11.000 starfsmenn um allan heim sem sinna vernd og aðstoð við stríðshrjáða. Á árinu 2002 heimsóttu sendifulltrúar tvö þúsund fangelsi og tóku persónuleg viðtöl við 150.000 fanga, aðallega stríðsfanga og samviskufanga. Þeir söfnuðu hálfri milljón Rauða kross skilaboða og komu flestum þeirra til skila. Í 50.000 tilfella fannst ekki viðkomandi. Bein aðstoð Rauða krossins náði til einnar og hálfrar milljóna manna auk þess sem aðstoð í formi drykkjarvatns og heilbrigðisþjónustu á átakasvæðum náði til milljóna til viðbótar.