Heimsóknarþjónusta er eitt af áhersluverkefnum Rauða krossins. Um er að ræða heimsóknir til aldraða, sjúka, geðfatlaða og aðra sem búa við einsemd og félagslega einangrun. Sjálfboðaliðar veita fólki félagsskap, spjalla eða lesa fyrir viðkomandi auk þess sem þeir geta aðstoðað við ýmis viðfangsefni hversdagsins eins og aðstoða við innkaup, fara í göngu- og ökuferðir, svo eitthvað sé nefnt. Miðað er við að sjálfboðaliði komi í heimsókn einu sinni í viku u.þ.b. klukkustund í senn, eða allt eftir samkomulagi sjálfboðaliðans og gestgjafans.
Hafir þú þörf fyrir eða þekkir aðra sem hafa þörf fyrir þjónustu af þessu tagi hvetjum við þig til að hafa samband við sjálfboðamiðstöð okkar.