Kópavogsdeild
Um Kópavogsdeild
Sjálfboðastarf
Félagsaðild
Alþjóðlegir foreldrar
Alþjóðastarf
Föt sem framlag
Heimsóknaþjónusta
International Parents
Viðburðir
International Parents
Námsaðstoð fyrir framhaldsskóla
Neyðaraðstoð
Nýttu tímann - námskeið, fyrirlestrar og samverur
Starf fyrir fólk með geðraskanir
Ungmennastarf
Ungt fólk til athafna
Viltu tala meiri íslensku?
Námskeið
Útgefið efni
Tenglar
Myndir

Kópavogsdeild

Rauðakrosshúsið
Hamraborg 11
Sími 554 6626
kopavogur@redcross.is
Dvöl - athvarf fyrir fólk með geðraskanir
Reynihvammi 43
Sími: 554 1260
dvol@redcross.is
Styrkja starfið

Athyglisvert efni

Palina

Heimsóknavinir gefa lífinu lit

Heimsóknaþjónusta er eitt af áhersluverkefnum deildarinnar. Sjálfboðaliðar okkar heimsækja fólk á öllum aldri sem búa við einsemd og félagslega einangrun.

Lesa nánar
skyndihjalpartaska.jpg

Viðburðir og námskeið

Kynntu þér viðburði og námskeið á döfinni.

Lesa nánar
Hamraborg.jpg

Fréttir úr starfi deildarinnar

Fylgstu með fjölbreyttu starfi deildarinnar.

Lesa nánar

Helstu fréttir

Fréttayfirlit
  • Eldhugastarf í félagsmiðstöðvum Kópavogs

    01.02.2012

    Hópur ungra sjálfboðaliða Kópavogsdeildar hefur tekið að sér umsjón með kynningarstarfi Eldhuga í félagsmiðstöðvum bæjarins. Hópurinn hefur undirbúið sig vel og samanstendur af sjálfboðaliðum deildarinnar sem sumir hverjir hafa tekið þátt í starfinu frá unga aldri.

    Lesa nánar
  • Tombóla

    01.02.2012

    Vinkonurnar Viktoría Rós Antonsdóttir og Embla Helgadóttir Isaksen í 3.SGG í Álfhólsskóla héldu tombólu á dögunum. Þær seldu jólakort, afmæliskort og listaverk sem þær höfðu sjálfar búið til. Afraksturinn var um 4000kr sem þær færðu Rauða krossinum til þess að hjálpa öðrum. 

    Lesa nánar
  • Slys og veikindi barna 6. og 7. febrúar – nokkur laus pláss

    31.01.2012

    Enn eru nokkur laus pláss á námskeiðið slys og veikindi barna sem haldið verður dagana 6. og 7. febrúar n.k.. Kennslan fer fram í Rauðakrosshúsinu í Kópavogi, Hamraborg 11, á 2. hæð kl.18 til 21 báða dagana. Hægt er að skrá sig beint á námskeið með því að smella hér. Einnig er hægt að senda tölvupóst á kopavogur@redcross.is eða hringja í síma 554-6626 og fá nánari upplýsingar.

    Lesa nánar
  • Nýr starfsmaður hjá Kópavogsdeild

    30.01.2012

    Hrafnhildur Kvaran hóf störf hjá Kópavogsdeild Rauða krossins í byrjun vikunnar en hún gegnir stöðu verkefnastjóra félags- og sjálfboðaliðamála í 50% starfi. Hún starfar einnig hjá Garðabæjardeild Rauða krossins þar sem hún hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra síðan um mitt árið 2010.

    Lesa nánar
  • Kópavogsdeild óskar eftir garni og ungbarnafötum

    19.01.2012

    Deildin starfrækir verkefnið Föt sem framlag þar sem sjálfboðaliðar útbúa fatapakka til að senda til ungbarna í neyð í Malaví. Í pakkana fara prjónaðar flíkur sem og notuð föt en markmiðið með verkefninu er að mæta skorti á ungbarnafötum á svæðum þar sem neyð ríkir en í almennum fatasöfnunum berst minnst af barnafötum. Þeir sem eiga garn, garnafganga og ungbarnaföt aflögu og vilja aðstoða deildina í þessu verkefni geta komið í Rauðakrosshúsið í Hamraborg 11 með framlag sitt. Af ungbarnafötum er tekið á móti samfellum, nærfötum, peysum, buxum, sokkum og treyjum fyrir 0-12 mánaða.

    Lesa nánar
  • Gítarleikari óskast í sjálfboðið starf í Sunnuhlíð

    17.01.2012

    Kópavogsdeild vantar sjálfboðaliða til að spila á gítar í söngstundum á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Söngstundirnar eru vikulega á fimmtudögum kl. 15-16 og eru hugsaðar sem afþreying fyrir heimilisfólk Sunnuhlíðar. Sjálfboðaliðar sjá um söng og vantar nú gítarleikara í undirspil. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Kópavogsdeild í síma 554 6626 eða á netfangið kopavogur@redcross.is.

    Lesa nánar
  • Laust starf: Rekstrarstjóri

    13.01.2012

    Kópavogsdeild Rauða krossins auglýsir eftir rekstrarstjóra fataverslana á höfuðborgarsvæðinu í 50% starf. Um er að ræða fimm verslanir sem selja notaðan fatnað og sjá sjálfboðaliðar félagsins um afgreiðslustörf.

    Lesa nánar
Palina

Heimsóknavinir gefa lífinu lit

Heimsóknaþjónusta er eitt af áhersluverkefnum deildarinnar. Sjálfboðaliðar okkar heimsækja fólk á öllum aldri sem búa við einsemd og félagslega einangrun.

Lesa nánar