Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Félagsvinir atvinnuleitenda

Verkefnið félagsvinir atvinnuleitenda hefur það markmið að virkja og styrkja atvinnuleitendur í starfsleit sinni. Það er meðal annars gert með því að auka aðgengi þeirra að upplýsingum um öll þau úrræði sem eru í boði fyrir atvinnuleitendur. Markmiðin fyrir þátttakendur verkefnisins eru: Hjálp til sjálfshjálpar, vinna gegn niðurbroti, stækka tengslanet og auka möguleika til starfa. Virkni á meðan á atvinnuleit stendur eykur vellíðan og gerir það að verkum að atvinnuleitendur eru tilbúnir að mæta til starfa þegar kallið kemur.

Verkefnið byggir á jafningjafræðslu, þeir sem veita leiðsögnina eru sjálfir atvinnuleitendur en hafa fengið fræðslu og þjálfun hjá samstarfsaðilum verkefnisins til þess að styðja og leiðbeina fólki í sömu stöðu. Hvert samband varir í þrjá mánuði og áætlað er að félagsvinir hittist einu sinni í viku. Félagsvinasamband byggir á jafnréttisgrundvelli, gagnkvæmri virðingu og tillitssemi. Félagsvinir atvinnuleitenda er unnið í samstarfi við; Eflingu, Iðuna fræðslusetur, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fræðsluskrifstofu rafiðnar, Mími símenntun og þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu.

Um verkefnið
Félagsvinaverkefni fyrir atvinnuleitendur byggir á sambandi tveggja einstaklinga þar sem annar leiðir sambandið (sjálfboðaliði) en hinn þiggur leiðsögn (atvinnuleitandi), þeir eru félagsvinir hvors annars. Sá sem leiðir sambandið hefur hlotið til þess þjálfun hjá samstarfsaðilum verkefnisins og hefur einnig sjálfur reynslu af atvinnuleit. Sambandið tekur mið af óskum og þörfum atvinnuleitandans með það að markmiði að sambandið opni dyr að helstu úrræðum sem geta gagnast honum í atvinnuleitinni. Atvinnuleitendur setja sér sjálfir persónuleg markmið sem þeir vilja ná á þessu þriggja mánaða tímabili og gera vinnuáætlun með aðstoð verkefnisstjóra og sínum félagsvini. Verkefnisstjóri skoðar svo árangur þátttakenda á miðju tímabilinu og í lok þess. Markmiðin geta fjallað um að afla nýrrar þekkingar, efla persónulega eiginleika eða breyta ákveðnum venjum. Við setningu markmiðanna er mikilvægt að atvinnuleitandinn skoði þarfir sínar í víðu samhengi og meti stöðu sína, umhverfi sitt, sérþekkingu sína og eiginleika.

Sjálfboðaliðar
Sjálfboðaliðar þessa verkefnis eru einstaklingar sem eru atvinnulausir en virkir í atvinnuleit og sjálfboðaliðastarfi. Þeir eru teknir í viðtöl þar sem meðal annars er farið yfir lífsögu þeirra, þeir spurðir um líðan og eigin virkni ásamt ástæðunni fyrir atvinnuleitinni. Allir sjálfboðaliðar fara í undirbúningsnámskeið. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fræðist um ábyrgð og skyldur sem fylgja því að vera félagsvinur, þjálfun til þess að leiðbeina öðrum atvinnuleitendum í starfsleit sinni með því að fá hagnýtar upplýsingar um réttindi, skyldur og hvaða úrræði eru í boði fyrir atvinnuleitendur, að efla sjálfstraust og leiðtogahæfileika þátttakenda og að öðlast ferska sýn á eigin getu og hæfileika sem styrkir þá í atvinnuleitinni.

Að fá félagsvin
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í meira en sex mánuði og hafa ekki verið virkir í sjálfboðnu starfi hafa kost á því að fá félagsvin. Mikilvægt er að þeir hafi vilja til þess að taka ábyrgð og stjórn á eigin lífi og aðstæðum ásamt því að vera opnir fyrir nýjum möguleikum og tækifærum. Í upphafi félagsvinasambands skoða atvinnuleitendur þarfir sínar í víðu samhengi, ræða þær við sinn félagsvin og setja sér markmið með sambandinu. Til þess að ná markmiðum sínum búa þeir til vinnuáætlun með tímaramma sem stuðst er við á meðan sambandið varir. Félagsvinir leggja vinnuáætlun sína fyrir verkefnisstjóra á þriðja fundi sínum sem skoðar árangurinn á miðju tímabilinu og í lok þess. Í upphafi verkefnisins fá þátttakendur námskeið um hugmyndafræði verkefnisins, markmiðssetningar og gerð vinnuáætlunar. Farið er sérstaklega vel yfir mikilvægi þess að hafa markmiðin SMART, þ.e. að þau séu samkvæmt SMART reglunni en hún segir að öll markmið eigi að vera:

•    S = Skýr: mikilvæg, læsileg og skiljanleg.
•    M = Mælanleg: þú verður að vita hvenær þú hefur náð þeim.
•    A = Alvöru: þú verður að geta náð þeim.
•    R = Raunhæf: það má ekki taka of langan tíma að ná þeim.
•    T = Tímasett: settu lokatíma á markmiðin.

Hlutverk sjálfboðaliða
Hlutverk sjálfboðaliða er að: Hlusta, spyrja, veita leiðsögn, vera heiðarlegur og sýna virðingu ásamt því að opna dyr og vísa leiðina að úrræðum fyrir atvinnuleitendur.

Sjálfboðaliði þarf að:
• Vera góður og þolinmóður hlustandi.
• Sýna stuðning og vera hvetjandi leiðbeinandi.
• Hafa sýn fyrir möguleikum atvinnuleitenda til sjálfstyrkingar og draga fram ný sjónarhorn á hugsanleg tækifæri fyrir sinn félagsvin.
• Vera meðvitaður um að allar samræður fara fram í trúnaði.
• Nota eigin reynsluheim til aðstoðar ef þörf krefur.
• Njóta þess að deilda þekkingu, hæfni og reynslu.
• Veita sínum félagsvini uppbyggjandi gagnrýni.
• Vera heiðarlegur og tala um annað fólk af virðingu.
• Taka ábyrgð á að sambandið verði farsælt.

Ávinningur sjálfboðaliða er að hann:
• Fær nýja sýn á eigin aðstæður og lifnaðarhætti.
• Deilir hæfileikum sínum og þekkingu.
• Sér aðra manneskju styrkjast.
• Fær aðgang að tengslaneti við aðila sem bjóða úrræði til styrkingar atvinnuleitendum.
• Öðlast leiðbeinendahæfileika sem hægt er að nýta í öðru samhengi.
• Gefur til samfélagsins.
• Öðlast dýpri þekkingu á eigin hæfileikum.
• Styrkir leiðtogahæfileika sína.
• Getur með stolti sett þessa reynslu á ferilskrá sína.

Hlutverk atvinnuleitenda
Hlutverk atvinnuleitenda er að: Skoða þarfir sínar í víðu samhengi og ræða þær við sinn félagsvin, vera heiðarlegur, sýna virðingu, spyrja, hlusta og vera opinn fyrir tillögum.

Atvinnuleitandi þarf að:
• Setja sér markmið með sambandinu.
• Hafa vilja til þess að taka ábyrgð og stjórn á eigin lífi og aðstæðum.
• Vera opinn fyrir nýjum möguleikum og tækifærum.
• Sýna áhuga.
• Hafa vilja til þess að hlusta á leiðbeiningar.
• Tileinka sér opin samskipti.

Ávinningur atvinnuleitanda:
• Fær ferska sýn á aðstæður sínar og afrek.
• Fær aðstoð við að uppfæra ferilskrá sína óski hann/hún eftir því.
• Á í trúnaðarsambandi við einhvern utan fjölskyldunnar.
• Fær leiðbeiningar frá aðila í sömu sporum sem hefur fengið fræðslu og þjálfun um þau úrræði sem eru í boði fyrir atvinnuleitendur.
• Fær ný tækifæri og nýtt tengslanet – dyr sem virst hafa lokaðar gætu opnast.
• Getur óhikað spurt félagsvin sinn einfaldra spurninga sem hann/hún hefur velt fyrir sér í langan tíma en ekki þorað að varpa þeim fram sökum ótta við að verða sér til minnkunar.
• Fær aukið sjálfstraust.
• Fær hvatningu til þess að sækjast eftir starfi sem hentar hans/hennar áhugasviði.

Félagsvinasamningur
Félagsvinir gera með sér samkomulag í upphafi hvers tímabils þar sem kveðið er á um að:
• Þeir/þær tali saman í trúnaði og standi við tímasetningar (þ.e. komi á réttum tíma og boði forföll með fyrirvara).
• Þeir/þær gefi ekki stórar gjafir eða láni peninga.
• Þeir/þær búi til sameiginlega áætlun um hvað er gert saman (markmið með sambandinu) og beri báðir/báðar ábyrgð á að fylgja henni eftir.
• Félagsvinasambandið geti hætt ef annar aðilinn óski eftir því.
• Þeir/þær séu í góðu sambandi við verkefnisstjóra á meðan á verkefninu stendur og láti vita ef það koma upp vandamál eða ef Þeir/þær vilja hætta í sambandinu.

Skráning í verkefnið
Þeir atvinnuleitendur sem hafa áhuga á því að fá nánari upplýsingar um verkefnið eða skrá sig í það geta óskað eftir viðtali hjá verkefnisstjóra, Fjólu Einarsdóttur, með því að senda póst á netfangið fjola@redcross.is eða hringja í síma 570-4000.