Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

 

Hin alþjóðlega hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er elsta, virtasta og fjölmennasta mannúðarhreyfing heims. Henni tilheyra 97 milljónir félagsmanna og sjálfboðaliða. Hreyfingin byggir tilveru sína á stuðningi almennings. Án þess stuðnings væri Rauði krossinn lítils megnugur.

Rauði kross Íslands er félag tæplega 20.000 félagsmanna, sem tilheyra 50 deildum um allt land. Þú getur sýnt stuðning þinn við markmið Rauða krossins með því að gerast félagi.

Styrktarfélagar eru þeir sem styðja með reglulegum greiðslum alþjóðlegt hjálparstarf. Til þess að halda bankakostnaði í lágmarki er best að setja slíkar greiðslur á kreditkort. Það er hægt að gera hér á vefnum.

Þeir sem vilja styðja hjálparstarfið geta greitt inn á reikning 12 í banka 0342, höfuðbók 26 og kennitala 530269-2649. 


 

Á vegum Rauða kross Íslands starfa um 1.500 sjálfboðaliðar. Flestir starfa að einu ákveðnu verkefni og gera um það samning við félagið. Sjálfboðaliðar heimsækja aldraða og sjúka, svara í Hjálparsíma Rauða krossins, flokka föt, vinna að neyðarvörnum, sitja í stjórnum deilda og landsfélags, aðstoða flóttamenn, hjálpa börnum af erlendum uppruna við heimanám og inna af hendi margvísleg störf sem miða að því að draga úr mannlegum þjáningum. Þú getur fengið upplýsingar um sjálfboðastörf hér á vefnum. 




Ég vil vera félagi
Ég vil verða sjálfboðaliði
Ég vil gefa til hjálparstarfs

Ég vil vera styrktarfélagi