Heimsóknavinir
 |
|
Öll höfum við þörf fyrir félagsskap, nærveru og hlýju. Maður er manns gaman. En það er misjafnt hvort og hvernig við berum okkur eftir hjálpinni. Bæði aðstæður og upplag geta orðið til þess að fólk missir samband við umheiminn og einangrast. Einsemd getur orðið vítahringur sem erfitt er að rjúfa.
Heimsóknavinir er eitt af áhersluverkefnum Rauða kross Íslands samkvæmt samþykktum aðalfundar á Ísafirði árið 2000.
Hvar og hvernig ?
• Almennar heimsóknir s.s. á heimili, stofnanir, dvalar – og hjúkrunarheimili, ökuvinir og hundavinir.
• Heimsóknir til fanga
• Heimsóknir til geðfatlaðra
Hvað er heimsóknavinur?
Heimsóknavinur er sjálfboðaliði sem heimsækir gestgjafa sinn að öllu jöfnu einu sinni í viku og eru þeir konur, karlar, ungir og aldraðir og þeir sem fá heimsóknir eru líka konur, karlar, ungir og aldraðir. Þeir sem heimsækja nefnast heimsóknavinir og þeir sem fá heimsókn nefnast gestgjafar.
Hvað gera heimsóknavinir?
Þeir geta talað saman, hlustað, spilað, föndrað, farið saman út að ganga, í bíó, á kaffihús, farið saman út af keyra eða t.d. fengið hund í heimsókn til sín. Mikilvægt er að geta tekið hverjum og einum eins og hann er, fyrirkomulag heimsóknarinnar er samkomulag.
Sjálfboðaliðar sem heimsækja fara á sérstakt námskeið hjá Rauða krossi Íslands og eru bundnir þagnarskyldu. Vitneskja um persónulega hagi fer ekki lengra.
Ef þú vilt verða heimsóknavinur skaltu sækja um að verða sjálfboðaliði Rauða krossins.
Ef þú hefur áhuga á að fá nánari upplýsinar hafðu þá samband við Sólborgu Öldu á tölvupóstfangið: solborg@redcross.is eða senda bréf. Láttu þá fylgja nafn, kennitölu og heimilisfang.
Póstfang:
Rauði kross Íslands
Efstaleiti 9
103 Reykjavík
|