 |
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sótti heim Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í morgun og hvatti nemendur þar til að taka þátt í landssöfnun Rauða krossins laugardaginn 4. október.
Forsetinn er verndari Rauða kross Íslands og söfnunarinnar Göngum til góðs, og hefur ætíð gefið sér tíma til að skora á landsmenn að sýna samstöðu með landssöfnuninni. Góður rómur var gerður að heimsókn forsetans og voru fjölmargir sem tóku hann á orðinu og skráðu sig til þátttöku.
Á fjórða hundrað sjálfboðaliðar hafa skráð sig um allt land, en reynslan sýnir að Rauði krossinn þarf að minnsta kosti 2500 manns til að ná að ganga í öll hús á landinu. Góð veðurspá er fyrir laugardaginn, og fátt sem mælir á móti því að fólk fái sér göngutúr í 1-2 klst. og safni fyrir fjölskyldur í Kongó.
Helst vantar sjálfboðaliða á höfuðborgarsvæðinu, en 24 söfnunarstöðvar eru í öllum hverfum borgarinnar og í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, á Álftanesi og Seltjarnarnesi. Þeir sem ekki sjá sér fært að ganga í hús eru hvattir til að taka vel á móti sjálfboðaliðum og vera tilbúnir með reiðufé þegar bankað er upp á.
Allt fjármagn sem safnast rennur óskert til leitarþjónustuverkefnis Rauða krossins í Kongó til að sameina fjölskyldur sem sundrast hafa vegna átaka.